Bandarískur stórbanki í hættu

Talið er að bandaríski bankinn CIT Group muni á næstu dögum óska eftir gjaldþrotavernd í samræmi við bandarísk gjaldþrotalög til að koma í veg fyrir fall. Um er að ræða greiðslustöðvun þar sem rekstur fyrirtækja er endurskipulagður til að koma í veg fyrir gjaldþrot.

Að sögn Bloomberg fréttastofunnar gerði bankinn í lok síðustu viku samninga við kaupsýslumanninn Carl Icahn og bankann Goldman Sachs Group. Icahn mun lána bankanum 1 milljarð dala í lausafé og Goldman Sachs mun halda opinni lánalínu ef CIT sækir um greiðslustöðvun.

Að sögn Bloomberg var tap á rekstri bankans yfir 5 milljarðar dala á fyrstu 9 mánuðum ársins og lánamarkaðir, sem CIT hefur getað sótt fjármagn til, hafa nú lokast.  Talið er að langtímaskuldir CIT nemi yfir 40 milljörðum dala en eignir bankans eru metnar á 71 milljarð dala.  Um 1 milljón lítilla og meðalstórra fyrirtækja eru í viðskiptum við bankann.

Samkvæmt áætlun um greiðslustöðvun fá lánardrottnar CIT 70 sent af hverjum dal. Verði bankinn þvingaður í gjaldþrot er hins vegar líklegt að lánardrottnar fái aðeins um 6% af til baka.   

CIT var bjargað frá yfirvofandi gjaldþroti í júlí þegar nokkrir stærstu lánardrottnar bankans veittu bankanum 3 milljarða dala neyðarlán. Þá hafði Bandaríkjastjórn hafnað að veita bankanum aukið fjárframlag en CIT hafði þegar fengið 2,3 milljarða dala úr opinberum sjóðum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK