Sjóvá til sölu

Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. hefur verið falið að annast formlegt og opið söluferli á Sjóvá-Almennum tryggingum sem er í dag 90,7% í eigu SAT Eignarhaldsfélags og 9,3% í eigu Íslandsbanka.

Í tilkynningu frá Íslandsbanka segir, að fjárfestum gefist kostur á því að bjóða í allt hlutafé Sjóvár. Söluferlið hefst formlega á mánudaginn kl. 10 en þá verða birgar upplýsingar á heimasíðu bankans. 

Söluferlið verður opið öllum áhugasömum fjárfestum sem teljast fagfjárfestar samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti og geta sýnt fram á eiginfjárstöðu umfram 500 milljónir króna.

Áhugasamir fjárfestar þurfa að fylla út trúnaðaryfirlýsingu sem hægt er að nálgast á heimasíðu Íslandsbanka  ásamt því að leggja fram nauðsynlegar upplýsingar og gögn sem staðfesta að ofangreind skilyrði séu uppfyllt. Í kjölfarið fá fjárfestar afhent frekari gögn um félagið. Seljandi áskilur sér þó rétt til þess að takmarka aðgang að söluferlinu þegar fyrir hendi eru lagalegar takmarkanir á því að fjárfestir eignist ráðandi hlut í félaginu, svo sem vegna samkeppnisreglna. Jafnframt er vakin athygli á því að samþykki Fjármálaeftirlitsins er skilyrði fyrir því að fjárfestir geti farið með virkan eignarhlut í tryggingafélagi.

Gert er ráð fyrir að óskuldbindandi tilboðum sé skilað til Íslandsbanka  fyrir kl. 14. þriðjudaginn 2. febrúar. Þeim fjárfestum sem leggja fram hæstu tilboðin og sýna fram á fjárhagslega burði til að standa við þau, verður boðið til áframhaldandi þátttöku í söluferlinu. Fá þeir þá aðgang að nánari upplýsingum um starfsemi og fjárhag fyrirtækisins.

Tilboðum, með fyrirvara um áreiðanleikakönnun, ber að skila í síðasta lagi mánudaginn 22. febrúar 2010, fyrir kl. 14. Tilboð verða opnuð í viðurvist óháðs aðila.

Í tilkynningu er haft eftir Lárusi Ásgeirssyni, forstjóra Sjóvár, að söluferlið á Sjóvá komi í beinu framhaldi af mjög vel heppnaðri fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins. Staða Sjóvár sé góð og félagið hafi verið endurfjármagnað. Söluferlið hafi engin áhrif á daglega starfsemi félagsins eða viðskiptavini þess.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK