Gunnar Helgi nýr formaður bankaráðs NBI

Nýtt bankaráð Landsbankans var skipað í dag
Nýtt bankaráð Landsbankans var skipað í dag mbl.is/Árni Sæberg

Bankasýsla ríkisins hefur skipað þau Gunnar Helga Hálfdánarson, Guðríði Ólafsdóttur, Hauk Halldórsson og Sigríði Hrólfsdóttur sem aðalmenn í bankaráð Landsbankans (NBI hf.). Gunnar Helgi verður stjórnarformaður bankans.

Varamenn skipaðir af Bankasýslu ríkisins eru þau Andri Geir Arinbjarnarson, Guðrún Ragnarsdóttir, Loftur Árnason og Þórdís Ingadóttir.

Tók nýtt bankaráð við á aðalfundi bankans fyrir árið 2008 sem haldinn var í dag. Samkvæmt tillögu hluthafa bankans var þóknun ákveðin 400.000  krónur á mánuði fyrir formann bankaráðs og 200.000 krónur fyrir aðalmann í bankaráðinu. 

Bankasýslan fer með 81,3% eignarhlut ríkisins í Landsbanka og skipar fjóra stjórnarmenn af fimm. Skilanefnd Landsbankans, sem fer með 18,7% eignarhlut í Landsbankanum, skipar fimmta stjórnarmanninn.

Mögulega fjölgað í bankaráði á næsta aðalfundi

Rætt hefur verið innan Bankasýslunnar hvort rétt geti verið að fjölga fulltrúum í bankaráð Landsbankans og verður ákvörðun um það tekin fyrir aðalfund ársins 2009 sem haldinn verður í apríl næstkomandi. Markmiðið með slíkri fjölgun væri að styrkja bankaráðið í ljósi þeirra umfangsmiklu og vandasömu verkefna sem framundan eru við uppbyggingu Landsbankans. Þá er einnig til skoðunar hvort leita eigi til erlendra sérfræðingu varðandi stjórnarsetu.

Fyrsta verkefnið að auglýsa eftir bankastjóra

„Ég fagna því að nýtt bankaráð Landsbanka Íslands hafi verið skipað. Bankaráðinu bíður mikið starf við enduruppbyggingu bankans en eitt fyrsta verkefni ráðsins verður að auglýsa eftir og ráða nýjan bankastjóra.

Þeir tveir karlar og tvær konur sem Bankasýslan skipar í ráðið eru valin úr stórum hópi hæfileikafólks og ánægjulegt að sjá hversu margir vilja leggja sitt af mörkum við endurreisn íslensks fjármálalífs. Við leggjum mikið upp úr jafnrétti kynjanna við val á stjórnarmönnum og viljum sjá þau sjónarmið ráða ferðinni þegar stjórnarmenn dótturfyrirtækja bankans verða valdir,“ segir Elín Jónsdóttir, forstjóri Bankasýslu ríkisins, í fréttatilkynningu.

Fulltrúar Bankasýslunnar eru lögum samkvæmt tilnefndir samkvæmt tillögum um stjórnarmenn frá valnefnd Bankasýslunnar. Valnefndinni hafa á síðustu mánuðum borist um 300 ábendingar um mögulega stjórnarmenn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK