Independent selt á 1 pund

Rússneski milljarðamæringurinn Alexander Lebedev.
Rússneski milljarðamæringurinn Alexander Lebedev.

Fyrrum njósnari hjá leyniþjónustu Rússa, KGB, Alexander Lebedev, hefur keypt breska dagblaðið  Independent og sunnudagsútgáfu blaðsins, Independent on Sunday, á eitt pund, að því er segir í tilkynningu frá útgefanda blaðsins.

Fjárhagsstaða blaðsins er afar slæm líkt og hjá fjölmörgum dagblöðum um þessar mundir. Í viðskiptunum felst, að Independent News and Media, sem hefur gefið blöðin út, muni greiða 9,23 milljónir punda af skuldum blaðsins á næstu 10 mánuðum en fyrirtækið   Independent Print Limited, sem er í eigu Lebedevs, mun yfirtaka aðrar skuldbindingar.

Lebedev keypti Lundúnablaðið Evening Standard fyrir 1 pund í janúar á síðasta ári. Blaðinu var breytt í fríblað í október.

Lebedev, sem á hlutabréf í rússneskum bönkum og flugfélögum, á 49% hlut í rússneska blaðinu Novaja Gazeta ásamt Mikhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi forseta Sovétríkjanna. Blaðið hefur verið frekar gagnrýnið í garð rússneskra stjórnvalda. 

Breska dagblaðið Independent er komið í rússneska eigu
Breska dagblaðið Independent er komið í rússneska eigu
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK