Gengi grískra hlutabréfa hrynur

Línuritin lágu öll niður á við í kauphöllinni í Aþenu …
Línuritin lágu öll niður á við í kauphöllinni í Aþenu í morgun. Reuters

Gengi grískra hlutabréfa hefur hrunið í morgun í kauphöllinnini í Aþenu og kauphallarvísistalan hefur lækkað um rúm 5%. Er þetta rakið til ótta fjárfesta við að gríska ríkinu takist ekki að uppfylla fjárhagslegar skuldbindingar sínar en skuldatryggingaálag grískra ríkisskuldabréfa hefur hækkað mikið síðustu daga.

Það voru einkum stórir grískir bankar, sem hafa orðið fyrir barðinu á þessari þróun en í gær tilkynnti seðlabanki Grikklands, að margir af stærstu bönkum landsins hefðu óskað eftir fjárstuðningi í samræmi við áætlun, sem þáverandi ríkisstjórn lagði fram undir lok ársins 2008.

Ávöxtunarkrafa á 10 ára ríkisskuldabréf hækkaði í rúm 7,4% í gær og hefur ekki verið hærri frá því Grikkland tók upp evru árið 2001.  
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK