Afskrifar kröfuna á Straum

Starfssvæði Stapa er aðallega á Norður- og Austurlandi.
Starfssvæði Stapa er aðallega á Norður- og Austurlandi. mbl.is/Kristinn

Afkoma lífeyrissjóðsins Stapa var slök á síðasta ári. Sjóðurinn hefur tekið ákvörðun um að færa niður að fullu kröfu sem sjóðurinn átti á Straum-Burðarás. Við það versnar tryggingafræðileg staða sjóðsins um 1-2%.

Straumur varð gjaldþrota á síðasta ári. Krafa Stapa á bankann hljóðaði upp á 4 milljarða króna. Vegna mistaka skilaði lífeyrissjóðurinn ekki inn kröfu fyrir auglýstan kröfulýsingarfrest. Til að ná fram kröfunni þurfti Stapi að óska eftir því við aðra kröfuhafa að þeir samþykktu að taka kröfuna til greina.

„Þá varð sjóðurinn fyrir miklu áfalli um mitt sumar 2009 þegar í ljós kom að lögmannsstofa sem unnið hefur fyrir sjóðinn til margra ára, lýsti kröfum í þrotabú Straums Burðaráss Fjárfestingarbank hf. eftir að kröfulýsingarfrestur var útrunninn.  Strax í kjölfarið var sett af stað mikil vinna til að reyna að koma kröfunni að  og er enn í dag ekki útséð um hvort það tekst.  Hins vegar er mat stjórnenda sjóðsins, að svo mikil óvissa ríki um afdrif kröfunnar, að ekki er annað verjandi en að færa hana niður að fullu.  Þessi niðurfærsla hafði veruleg áhrif til hins verra á afkomu sjóðsins á árinu og gerir tryggingafræðilega stöðu sjóðsins lakari um 1-2%,“ segir í frétt frá sjóðnum.

Árið 2009 var erfitt rekstrarár fyrir Stapa lífeyrissjóð.  Afkoma Tryggingadeildar sjóðsins var slök annað árið í röð og er tryggingafræðileg staða deildarinnar erfið. Tryggingafræðileg staða lífeyrissjóðsins er neikvæð um 21,1 milljarð króna eða sem nemur 10,8% af eignum sjóðsins. „Þrátt fyrir varfærið mat á eignum í árslok 2008 reyndist staðan vera mun verri en gert var ráð fyrir og hafði töluverð áhrif á afkomu ársins 2009.“

Nafnávöxtun Tryggingadeildar var jákvæð um 1,9% en raunávöxtun neikvæð um 6,2%.  Söfn Séreignardeildar komu vel út á árinu og var raunávöxtun Safns I 10,9%, Safns II 11,5% og Safns III 9,2% á árinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka