Fer úr stjórn TM

Jón Sigurðsson.
Jón Sigurðsson. mbl.is/Rax

Jón Sigurðsson, formaður stjórnar Tryggingamiðstöðvarinnar hf., hefur sagt sig úr stjórn félagsins. Varaformaður stjórnar, Eva Bryndís Helgadóttir, gegnir störfum formanns hér eftir. Varamaður í stjórn, Júlíus Þorfinnsson, tekur sæti í aðalstjórn.

Jón, sem er framkvæmdastjóri Stoða, áður FL-Group, er meðal þeirra sem slitastjórn Glitnis höfðaði mál gegn í New York fyrir helgi. 

Málaferlin í New York eru höfðuð gegn Jóni Ásgeiri, áður helsta hluthafa bankans, Lárusi Welding, áður forstjóra Glitnis, Þorsteini Jónssyni, áður stjórnarformanni, Jóni Sigurðssyni, áður stjórnarmanni Glitnis og aðstoðarforstjóra FL Group, Pálma Haraldssyni, áður hluthafa í Glitni, Hannesi Smárasyni, áður forstjóra FL Group, Ingibjörgu Pálmadóttur, eiginkonu Jóns Ásgeirs, og PricewaterhousCoopers, áður endurskoðanda Glitnis.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK