Forstjóraskipti hjá Actavis

Sigurður Óli Ólafsson og Björgólfur Thor Björgólfsson
Sigurður Óli Ólafsson og Björgólfur Thor Björgólfsson mbl.is/Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Claudio Albrecht tekur í dag við sem forstjóri Actavis Group af Sigurði Óla Ólafssyni sem hefur gegnt starfinu undanfarin ár. Siguður Óli hættir í dag störfum fyrir Actavis en hann hefur starfað hjá félaginu í sjö ár, þar af tæp tvö ár sem forstjóri samstæðunnar. 

Var forstjóri Ratiopharm

Í tilkynningu kemur fram að Albrecht hafi unnið í meira en 20 ár í samheitalyfjageiranum, fyrst hjá Sandoz frá 1987, þar sem hann gegndi m.a. stöðu framkvæmdastjóra í Hollandi, Þýskalandi og Bandaríkjunum.

„Árið 2000 varð hann forstjóri Ratiopharm á heimsvísu. Tekjur félagsins tvöfölduðust undir hans stjórn og Ratiopharm varð þriðja stærsta samheitalyfjafyrirtæki heims. Árið 2008 stofnaði hann ráðgjafarfyrirtækið Cometh, sem sérhæfir sig í stefnumótunarráðgjöf til lyfjafyrirtækja. Claudio Albrecht er 51 árs, austurrískur ríkisborgari með doktorsgráðu í lögfræði," segir í tilkynningu.
 
Leitað að réttri staðsetningu fyrir höfuðstöðvar

„Eftir margar yfirtökur og hraðan vöxt undanfarinna ára er yfirstjórn Actavis staðsett í fimm löndum, víða um Evrópu og í Bandaríkjunum. Ákveðið hefur verið að sameina æðstu stjórnendur félagsins á einum hentugum stað á meginlandi Evrópu. Leitað er að réttu staðsetningunni.

Engin breyting verður á starfsemi Actavis á Íslandi að öðru leyti. Hér á landi verður áfram miðpunkturinn í þróunarstarfseminni ásamt því sem verksmiðjan í Hafnarfirði mun áfram gegna lykilhlutverki í framleiðslu og markaðssetningu nýrra lyfja.

Dótturfélaginu Medis, sem sér um sölu til þriðja aðila, verður áfram stýrt frá Íslandi. Eins og fram hefur komið er verið að stækka verksmiðjuna í Hafnarfirði um 50% og er sem fyrr gert ráð fyrir að starfsemi í nýja hlutanum hefjist um áramót. Auglýst verður eftir starfsfólki vegna þessa á haustmánuðum," segir enn fremur í tilkynningu.
 
Björgólfur sannfærður um leiðtogahæfileika Albrecht

Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Actavis Group, segir í tilkynningu: „Ég er mjög ánægður með að hafa fengið Dr. Claudio Albrecht til liðs við Actavis og er sannfærður um að félagið muni njóta góðs af leiðtogahæfileikum hans.

Hann hefur starfað sem ráðgjafi okkar undanfarna mánuði og reynst afar vel. Reynsla hans og stefnufesta mun tryggja áframhaldandi vöxt og viðgang þessa öfluga fyrirtækis.
Þótt Actavis starfi nú í 40 löndum og hafi alls yfir 10 þúsund starfsmenn þá eru rætur þess á Íslandi og munu verða áfram. Actavis er þekkingarfyrirtæki sem byggir að verulegum hluta á kunnáttu, þekkingu og reynslu íslenskra starfsmanna. Hérna er rekin stór lyfjaverksmiðja og hér fer rannsóknar- og þróunarstarf félagsins fram. Þessi starfsemi mun enn eflast á næstunni og Actavis því áfram verða einn öflugasti vinnuveitandi landsins.

Ég vil þakka Sigurði Óla Ólafssyni fyrir að hafa leitt Actavis á undanförnum árum. Undir hans stjórn hélt Actavis sæti sínu sem öflugt fyrirtæki í fremstu röð á erfiðum tímum."
 
Sigurður Óli Ólafsson, fráfarandi forstjóri, segir í tilkynningu:
„Þrátt fyrir ótrúlega erfið ytri skilyrði á undanförnum árum hefur Actavis haldið áfram að vaxa og styrkja stöðu sína á lykilmörkuðum, þar á meðal í Bandaríkjunum. Mig langar að þakka öllu starfsfólki Actavis fyrir ánægjulegt samstarf á liðnum árum og ég óska Claudio góðs gengis í nýju hlutverki."
 
Claudio Albrecht, forstjóri Acavis Group, segir í tilkynningu:

„Það er mér sérstök ánægja að ganga til liðs við félag sem byggir á svo sterkum grunni fyrir framtíðina. Actavis hefur eina sterkustu þróunarlínu allra félaga í samheitalyfjageiranum, en við þurfum að stækka markaðshlutdeildina okkar á nokkrum stórum mörkuðunum. Þetta á sérstaklega við í suður Evrópu, en einnig á nýjum mörkuðum sem eru í örri þróun. Að þessu stefnum við. Ég hlakka til að takast á við verkefnin sem framundan eru, og að vinna með nýju samstarfsfólki að áframhaldandi uppbyggingu félagsins."

Höfuðstöðvar Actavis í Hafnarfirði
Höfuðstöðvar Actavis í Hafnarfirði mbl.is/Þorkell
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK