Viðskipti
| AFP
| 4.9.2010
| 10:26
Krefjast bóta vegna eldgossins í Eyjafjallajökli
Frönsk flugfélög krefja frönsk stjórnvöld um 51 milljón evra, 7,8 milljarða króna, vegna kostnaðar við tilraunaflug og að senda vélar eftir frönskum strandaglópum víða um heim vegna eldgossins í Eyjafjallajökli í apríl sl.
Í franska blaðinu Le Parisien greinir frá þessu í dag en talið er að öskuskýið sem fylgdi eldgosinu hafi kostað frönsk flugfélög um 200 milljónir evra, 30,5 milljarða króna.
Um er að ræða kostnað vegna 32 tilraunafluga þar sem áhrif eldgosaöskunnar voru könnuð og kostnað við að senda 152 tómar vélar eftir frönskum strandaglópum, samkvæmt frétt blaðsins í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
Erlendar viðskiptafréttir
Hugin
06:11
Fundamental Research Initiates Coverage on Anaconda Mining (TSX:ANX) - Video Summary Posted on www.InvestmentPitch.com
Hugin
06:11
Laurentian Bank Securities Initiates Coverage on Adventure Gold (TSXV:AGE) - Video Summary Posted on www.InvestmentPitch.com




















