Skuldatryggingarálagið á niðurleið

Reuters

Skuldatryggingarálagið á ríki Vestur- Evrópu lækkaði þó nokkuð í gær. Þannig stóð meðaláhættuálagið til fimm ára í lok dags í gær samkvæmt gögnum úr Bloomberg-gagnveitunni í 208 punktum (2,08%). Daginn áður hafði það rokið upp í 225 punkta sem er næsthæsta gildi þess frá upphafi en það hefur hæst farið í 226 punkta sem átti sér stað í lok febrúar í fyrra, segir í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.

Álagið á ríkissjóðs Íslands stóð í lok dagsins í gær í 289 punktum en það hafði farið upp í 300 punkta í fyrradag. Af þeim ríkjum sem standa höllum fæti hvað fjármál ríkisins varðar var lækkunin mest hlutfallslega á skuldatryggingarálagi Ítalíu sem fór 268 punktum í 226 punkta.

Jafnframt lækkaði álagið töluvert á Spán, eða úr 364 punktum í 313 punkta, en þess má geta að nú í morgun seldi spænska ríkið skuldabréf fyrir 2,5 ma. evra á kröfunni 3,72%. Var selt magn þar með í takti við það sem spænska ríkið hafði upphaflega lagt upp með að selja fyrir sem var 1,75-2,75 milljarða evra, samkvæmt Morgunkorni.

„Útboðið nú í morgun er fyrsta útboð spænska ríkisins frá því að tilkynnt var formlega um fjárhagsaðstoð Írlands sem kunnugt er leiddi til töluverðrar taugaspennu á evrópskum mörkuðum. Í takti við þá þróun er krafan í þessu útboði þó nokkuð en í síðasta útboði sama skuldabréfaflokks sem átti sér stað snemma í október.

Í því útboði var krafa seldra bréfa 2,53% en þess má geta að skuldatryggingarálagið á Spán þennan sama dag stóð í í lok dags í 226 punktum. Á hinn bóginn er krafan í útboðinu í morgun þó nokkuð lægri en krafa bréfanna var á markaði þar sem fyrir útboðið voru bréfin seld á eftirmarkaði á kröfunni 3,94%.

Jafnframt reyndist eftirspurnin í útboðinu nú nokkuð meiri en í októberútboðinu en hún var nú 2,27 sinnum það magn sem selt var á móti 2,16 í október, og má því spænska ríkið ágætlega una við þessa niðurstöðu," segir í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK