Telja ólíklegt að evran lifi

Stytta með evrumerkinu fyrir utan Evrópusambandsþingið í Brussel.
Stytta með evrumerkinu fyrir utan Evrópusambandsþingið í Brussel. mbl.is/Baldur Arnarson

Sérfræðingar hjá hugveitunni Centre for Economics and Business Research telja að 20% líkur séu á því að evran verði enn við lýði í sömu mynd eftir áratug. Telja þeir jafnframt að erfiðleikar við að endurfjármagna skuldir á evrusvæðinu muni leiða til annarrar evrukrísu á árinu sem nú er nýhafið.

„Ef evrusvæðið gliðnar ekki í sundur gæti þetta orðið árið þegar það veikist verulega hvað varðar jafnstöðu við dollarann,“ sagði Douglas Williams, framkvæmdastjóri CEBR, í samtali við Daily Telegraph.

Fjárfestar halda að sér höndum 

Williams bendir á að Spánn og Ítalía þurfi að endurfjármagna yfir 400 milljarða af skuldum í evrum á fyrri helmingi ársins, markmið sem gæti reynst ógerlegt í ljósi ótta fjárfesta við stöðu efnahagsmála í ríkjum Suður-Evrópu. En með því er vísað til þess að ríki á borð við Portúgal og Ítalíu eiga í miklum erfiðleikum með að fjármagna skuldir á hagstæðum kjörum.

„Evran kynni að brotna í sundur á þessum tímapunkti, jafnvel þótt evrópskum stjórnmálamönnum takist yfirleitt að taka á krísum. Og ég geri ráð fyrir því að það sem muni brjóta upp evruna verði vangeta flestra ríkja til að innbyrða það beiska lyf sem er nauðsynlegt til að gera hagkerfi þeirra samkeppnishæf til lengri tíma litið,“ sagði Douglas og átti við niðurskurð og strangt aðhald í útgjöldum ríkisins.

Hafa hægt á ferlinu, ekki afstýrt því

Daily Telegraph ræðir einnig við Celetino Amore, stofnanda fyrirtækisins IlliquidX, sem sérhæfir sig í verslun með skuldabréf.

Amore spáir einnig erfiðleikum við endurfjármögnun ríkisskulda á evrusvæðinu.

„Það sem við erum að horfa fram á hefur greinilega möguleika til að verða að annarri lausafjárkreppu. Í þetta skiptið yrði hún hins vegar mun verri en áður. Stjórnvöldum hefur tekist að hægja á ferlinu, en vandamálin hafa ekki farið í burtu. Það eru útistandandi billjónir dala af skuldum sem verður að endurfjármagna eða selja.“ 

Verðmerkingum í verslun er breytt í Tallinn, höfuðborg Eistlands, við …
Verðmerkingum í verslun er breytt í Tallinn, höfuðborg Eistlands, við upptöku evrunnar um áramótin. Reuters
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK