Kaupa rúman helming í Sjóvá

Sjóvá.
Sjóvá.

SF1, sem er í eigu nokkurra lífeyrissjóða og annarra fjárfesta, hefur tryggt fjármögnun á kaupum á 52,4 prósenta hlut í Sjóvá-Almennum tryggingum hf.

Í tilkynningu segir að fjármögnunin sé hluti kaupsamnings milli Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf. („ESÍ“) og SF1 sem gerður var í lok söluferlis sem hófst í janúar á síðasta ári og fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hefur haft umsjón með. Kaupsamningurinn er háður skilyrðum um tiltekin atriði, þ.á m. samþykki Fjármálaeftirlitsins, Samkeppniseftirlitsins og stjórnar ESÍ, en vonast er til að afhending geti átt sér stað innan þriggja mánaða.

Stærstu eigendur SF1 eru Gildi lífeyrissjóður, SVN eignafélag ehf. (félag í eigu Síldarvinnslunnar hf.), SÍA I (fagfjárfestasjóður undir stjórn rekstrarfélagsins Stefnis, en eigendur SÍA I eru meðal annars stærstu lífeyrissjóðir landsins), Frjálsi Lífeyrissjóðurinn, Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 (LSR), Stapi Lífeyrissjóður og fagfjárfestasjóðurinn Stefnir ÍS-5.

Aðrir eigendur SF1 eru Festa lífeyrissjóður, EGG ehf., (í eigu Ernu Gísladóttur), Arkur ehf. (í eigu Steinunnar Jónsdóttur), Lífeyrissjóður bænda, Sigla ehf. (í eigu Tómasar Kristjánssonar og Finns Reyrs Stefánssonar) og Draupnir fjárfestingafélag (í eigu Jóns Diðriks Jónssonar).

Í tilkynningunni segir að kaupin séu að fullu fjármögnuð með eiginfjárframlögum og fer enginn hluthafanna með stærri hlut en sem svarar til 10% hlutdeildar í Sjóvá. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK