Forstjóri VÍS hættir

Guðmundur Örn Gunnarsson.
Guðmundur Örn Gunnarsson.

Stjórn Vátryggingafélags Íslands hefur fallist á ósk Guðmundar Arnar Gunnarssonar um að láta af störfum sem forstjóri félagsins. Jafnframt mun hann láta af störfum sem forstjóri Líftryggingafélags Íslands.

Í tilkynningu frá VÍS segir, að ákvörðun Guðmundar sé tekin í framhaldi af úttekt Fjármálaeftirlitsins á starfsemi og viðskiptaháttum VÍS í tíð eldri stjórna frá árinu 2008. Gengið hafi verið frá tímabundinni ráðningu Friðriks Bragasonar núverandi framkvæmdastjóra vátryggingasviðs VÍS í starf forstjóra félagsins.

Guðmundur Örn hefur óskað eftir að koma eftirgreindu á framfæri: „Gagnrýni Fjármálaeftirlitsins á störf mín í forstjórastóli félaganna kemur mér á óvart og veldur því vonbrigðum. Með ákvörðun minni um að víkja til hliðar er ég ekki að fallast á aðfinnslur FME heldur freista þess að standa sem fyrr vörð um hagsmuni VÍS og Líftryggingafélags Íslands. Ég þakka stjórn félagsins, samstarfsfólki mínu, viðskiptavinum félagsins og samstarfsaðilum ánægjulegt samstarf og óska félögunum alls hins besta í framtíðinni.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK