Samanlagt bókfært virði banka um 200 milljarðar

Samanlagt bókfært virði Íslandsbanka, sem skilanefnd Glitnis á 95% hlut í, og Arion banka, sem skilanefnd Kaupþings á 87% hlut í, nemur um 200 milljörðum króna. Má lesa þetta úr útgefnum fjárhagsupplýsingum skilanefndanna tveggja.

Nýjustu fjárhagsupplýsingar skilanefndar Glitnis miðast við lok mars á þessu ári, en nýjustu upplýsingar frá skilanefnd Kaupþings miðast við síðastliðin áramót. Skilanefndir bankanna eru afar varfærnar í verðmati á eignum sínum. Því er ekki fráleitt að ætla að verðmæti bankanna sé nokkru meira en bókfært virði þeirra segir til um. Bókfært verðmæti bankanna hefur að sama skapi aukist jafnt og þétt hjá skilanefndunum, eftir því sem tíminn hefur liðið frá yfirtöku þeirra á ráðandi eignarhlutum í bönkunum.

Verðmætur lausafjárstuðningur

Hafa ber í huga að skilanefndir bankanna voru skyldaðar til að leggja eignarhaldsfélögum bankanna, ISB Holding og Kaupskilum, til umtalsverðar fjárhæðir. Bókfært virði eignarhluta skilanefndanna stendur hins vegar, en hugsanlegt er að verðmæti bankanna yrði metið lægra ef lausafjárstuðningur ríkis og skilanefnda væri ekki fyrir hendi. Seðlabanki Íslands hefur jafnframt veitt Arion- og Íslandsbanka lausafjárstuðning upp á tugi milljarða króna.

Í gær lagði fjármálaráðherra síðan fram greinargerð um vegna skýrslu um endurreisn bankanna. Þar segir að endurreisn bankanna hefði kostað 156 milljörðum meira, hefði ríkið eignast alla bankana. En það er sú upphæð sem skilanefndirnar lögðu fram, að því er kemur fram í skýrslunni. Verðmæti eignarhluta skilanefndanna er því nú á bilinu 40-50 milljörðum króna hærra en sem nam fjárframlagi þeirra til að endurfjármagna bankana.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK