Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor´s setti lánshæfiseinkunn alþjóðlegu fjölmiðlasamsteypunnar News Corp. á athugunarlista. Segir S&P að aukin hætta sé á að rannsókn á símhlerunarmálinu í Bretlandi valdi því að grafi enn frekar undan trúverðugleika fyrirtækisins.
„Frá því við birtum síðustu skýrslu 13. júlí hefur rannsókn í Bretlandi verið víkkuð út og þrýstingur aukist frá bandarískum þingmönnum um að FBI hefji rannsókn," á starfsháttum News Corp. í báðum löndum," segir S&P.