Seðlabankinn hækkar vexti

Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands mbl.is/Ómar Óskarsson

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur.

Innlánsvextir eru því 4%, hámarksvextir á 28 daga innstæðubréfum 4,75%, vextir á lánum gegn veði til sjö daga 5%, sem eru svonefndir stýrivextir, og daglánavextir 6%.

Í yfirlýsingu peningastefnunefndar bankans segir að horfur um efnahagsumsvif eru í megindráttum svipaðar og í febrúarspá Seðlabankans. Gengi krónunnar er hins vegar veikara en í febrúar og verðbólguhorfur til skamms tíma hafa versnað nokkuð frá því sem var gert ráð fyrir í spánni.

Hætta á að verðbólga verði áfram mikil

Litið lengra fram á veginn er hætta á að verðbólga verði lengur fyrir ofan verðbólgumarkmið en spáð var, styrkist krónan ekki á komandi mánuðum. Í hvaða mæli þétting á glufum í gjaldeyrislögum mun hafa áhrif á gengi krónunnar kemur í ljós á næstunni.

„Eftir því sem efnahagsbatanum vindur fram og dregur úr slaka í þjóðarbúskapnum verður nauðsynlegt að draga úr slaka peningastefnunnar. Að hve miklu leyti þessi aðlögun á sér stað með hærri nafnvöxtum Seðlabankans fer eftir framvindu verðbólgunnar. Batni verðbólguhorfur ekki er líklegt að hækka þurfi nafnvexti frekar á næstunni til þess að taumhald peningastefnunnar, sem er enn tiltölulega laust, verði hæfilegt,“ segir í greinargerð peningastefnunefndarinnar.

Greiningardeildir viðskiptabankanna þriggja, Landsbankans, Arion banka og Íslandsbanka töldu allar að peningastefnunefndin myndi hækka vexti um 0,25 prósentur í dag.

Peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði síðast vexti í nóvembermánuði 2011. Seðlabankastjóri og aðstoðarseðlabankastjóri kynna ákvörðunina og svara spurningum fjölmiðla og sérfræðinga á fundi klukkan 10:30 í dag. Bein vefútsending er af fundinum á vef Seðlabanka Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK