30% af heimsframleiðslu í skattaskjólum

Hinir ofur-ríku geyma 21 trilljón Bandaríkjadollara í skattaskjólum víðsvegar um heim. Þessi upphæð samsvarar samanlagðri landsframleiðslu Japans og Bandaríkjanna, eða um 30% af árlegri framleiðslu í öllum heiminum. Breska blaðið the Observer greinir í dag frá skýrslu samtaka um réttlæti í skattamálum (e. Tax Justice Network), sem unnin var af James Henry, fyrrum aðalhagfræðingi ráðgjafafyrirtækisins McKinsey, þar sem fram kemur að bankarnir UBS, Credit Suisse og Goldman Sachs meðhöndli hæstu fjárhæðirnar þegar kemur að því að koma peningum í skattaskjól. 

Segir Henry að eignir hinna ofur-ríku séu „varðar af vel launuðu fólki í banka-, lögfræði-, endurskoðunar- og fjárfestingageiranum til að nýta sér hið landamæralausa og opna alþjóða hagkerfi“ til að koma peningum undan skatti. Samkvæmt skýrslunni eru eignir 92.000 aðila í skattaskjólum að verðmæti 6,3 trilljónir Bandaríkjadollara, en það er hærri upphæð en landsframleiðsla Japans. 

Ríki með miklar olíuauðlindir hafa sérstaklega þurft að horfa upp á fjármuni sína hverfa úr landi, en Henry segir að um 500 milljarðar Bandaríkjadollara hafi horfið úr rússnesku hagkerfi til skattaskjóla síðan 1990 og síðan 1970 hafi Sádi-Arabía horft á eftir 197 milljörðum og Nígería 196 milljörðum Bandaríkjadollara. Telur hann að upphæðirnar sem hafi flætt úr þróunarríkjum síðan 1970 myndu duga til að greiða upp allar erlendar skuldir ríkjanna.

Til að setja þessar upphæðir í betra samhengi þá væri 30% fjármagnstekjuskattur á 3% ávöxtun þessara peninga 189 milljarðar Bandaríkjadollarar, en það er hærri upphæð en þróuð ríki verja í þróunaraðstoð á hverju ári. Það er einnig tekið fram að þær upphæðirnar sem séu teknar með séu aðeins í formi bankainnistæðna og fljótandi fjármagns, en ekki í fasteignum eða t.d. snekkjum. Upphæðirnar séu einnig varlega áætlaðar og geti náð allt að 32 trilljónum Bandaríkjadollara.

Yfirlitsskýrsla Tax Justice Network

Efnisorð: skattaskjól
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK