Samkomulag með stuðningi AGS

Eatwell lávarður var fenginn til að veita Glitni ráðgjöf.
Eatwell lávarður var fenginn til að veita Glitni ráðgjöf. mbl.is/Árni Sæberg

Besta mögulega niðurstaðan í tengslum við uppgjör þrotabúa föllnu bankanna og í kjölfarið afnám fjármagnshafta væri ef erlendir kröfuhafar og íslensk yfirvöld myndu ná samkomulagi sem yrði stutt af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS).

Hægt væri að hugsa sér að AGS myndi veita skilyrta fjármögnun í erlendri mynt (e. contigent funding) í því skyni að auka trúverðugleika afnámsferlisins. Sjóðurinn hefur hagsmuna að gæta þar sem hann þyrfti að takast á við þær afleiðingar með íslenskum stjórnvöldum ef gengi krónunnar myndi falla skarpt við afnám hafta.

Þetta var á meðal þess sem kom fram í máli Johns Eatwells lávarðs, forseta Queen's College við Cambridge-háskóla í Bretlandi, á opnum kröfuhafafundi Glitnis í London í gær, sem fjallað er um í Morgunblaðinu í dag. Þar kynnti hann mat sitt á þjóðhagslegum stærðum og skýrslum um íslenska hagkerfið.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK