Hvað lækkar með fríverslunarsamningi?

Íslenski og kín­verski fán­inn.
Íslenski og kín­verski fán­inn. mbl.is/Ó​mar Óskars­son

Fríverslunarsamningur við Kína, sem tók gildi í dag, mun hafa margvísleg áhrif á viðskipti milli landanna, en fyrir útflutning Íslendinga skiptir mestu máli að fallið verði frá tollum á sjávarafurðir. Fyrir neytendur á Íslandi verða einnig einhverjar breytingar, en tollar á fjölda vöruflokka féllu niður. Meðal þeirra eru tollar á fatnað, leikföng, skó, snyrtivörur og raftæki.

Mbl.is kíkti á nokkra vöruflokka og bar saman tollur á þá fyrir og eftir að samningurinn tók gildi. Hafa ber í huga að þetta eru algengar breytingar í hverjum vöruflokki, en tollkerfið er viðamikið og flókið og því geta ákveðnar vörur dottið út fyrir þessa flokkun vegna eðlis þeirra eða gerðar.

  • Fatnaður: 15% niður í 0%
  • Leikföng: 10% niður í 0%
  • Töskur og fylgihlutir: 10% niður í 0%
  • Skór: 15% niður í 0%
  • Bílar og ökutæki: haldast í 0%
  • Snyrtivörur: 10% niður í 0%
  • Heimilisraftæki: 7,5% niður í 0%
  • Tölvur og skjáir: haldast í 0%
  • Sjónvörp: 7,5% niður í 0%
  • Skartgripir: 7,5% niður í 0%
  • Flugeldar: 10% niður í 0%

Hægt er að sjá lista úr viðauka 1 í samningi ríkjanna hér, en í flokkum sem merktir eru með bókstafnum A voru tollar felldir niður í dag.

Frétt mbl.is: Fríverslunarsamningur við Kína tekur gildi

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK