„Forviða á þessari niðurstöðu“

Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já.
Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já, segist forviða á niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins sem segir að fyrirtækið hafi brotið lög. Já mun áfrýja ákvörðun Samkeppniseftirlitsins.

Verðlagn­ing Já upp­lýs­inga­veitu fyr­ir aðgang að gagna­grunni fyr­ir­tæk­is­ins var óhóf­leg og til þess fall­in að úti­loka sam­keppni. Já braut með al­var­leg­um hætti gegn sam­keppn­is­lög­um og hef­ur Sam­keppnis­eft­ir­litið gert fyr­ir­tæk­inu að greiða 50 millj­ón­ir króna í stjórn­valds­sekt. Þetta kem­ur fram í ákvörðun Sam­keppnis­eft­ir­lits­ins sem birt var í dag.

„Við erum forviða á þessari niðurstöðu, þessi ákvörðun er einsdæmi í Evrópu og okkur algjörlega óskiljanleg. Ekkert sambærilegt félag og Já í Evrópu ber kvaðir eins og þær sem íslenska Samkeppniseftirlitið hefur nú lagt á Já. Samkvæmt ákvörðun Samkeppniseftirlitsins áttum við að kaupa gögn á 100% verði af símafyrirtækjunum en selja þau aftur á 3%.  Það er öllum fyrirtækjum í lófa lagt að semja beint við símafyrirtækin líkt og aðilar hafa þegar gert – en hver gengur til slíkra samninga þegar þeim er gert kleift að kaupa gögnin á undirverði af okkur?“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já, í fréttatilkynningu sem fyrirtækið hefur sent frá sér.

Þar kemur jafnframt fram að ákvörðun Samkeppniseftirlitsins gangi þvert á fyrri niðurstöðu úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála, en nefndin tók undir sjónarmið Já um að það sé fjarskiptafyrirtækjanna sem úthluta símanúmerum að veita heildsöluaðgang að slíkum gögnum.  Tvær eftirlitsstofnanir hafa þannig komist að sitthvorri niðurstöðunni í málinu, segir enn fremur í tilkynningu frá Já.

„Já hefur boðið gögnin til endursölu samkvæmt verðskrá sem kynnt var Samkeppnisstofnun árið 1998 án athugasemda, því vekur furðu að sama stofnun komist nú að annarri niðurstöðu. 

„Við höfnum því alfarið að Já hafi misbeitt meintri markaðsráðandi stöðu sinni á þessum markaði. Við höfum aldrei neitað neinum um aðgang að gagnagrunni okkar og verðskráin miðast við raunkostnað. Við munum að sjálfsögðu áfrýja málinu til úrskurðarnefndar samkeppnismála og dómstóla ef þess þarf.“ segir Sigríður Margrét enn fremur í tilkynningu.

Já braut lög með alvarlegum hætti

„Sigur fyrir neytendur“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK