Eitt smjörstykki á mann

Japanskur almenningur hefur áhyggjur af jólabakstrinum.
Japanskur almenningur hefur áhyggjur af jólabakstrinum. Hilmar Bragi/Víkurfréttir
Alvarlegur smjörskortur ríður nú yfir japanskan markað og eru margir smásalar farnir að takmarka smjörkaup almennings við eitt stykki á mann. Víða má sjá merkispjöld í gluggum með áletruninni „Við eigum smjör!“ til þess að lokka viðskiptavini inn í verslanir.

Margir hafa lýst yfir áhyggjum vegna ástandsins þar sem jólahátíðin nálgast óðfluga með tilheyrandi jólabakstri. Talsmaður landbúnaðarráðuneytisins segir að skortinn megi rekja til þess að óvanalega heitt hafi verið í sumar og voru kýrnar úrvinda í hitanum og mjólkuðu því minna en vanalega. Þá hafa kúabændur sett það í forgang að viðhalda mjólkinni í búðunum og hefur því minna verið til af smjöri.

Stjórnvöld gripu til aðgerða vegna skortsins í maí og fluttu inn um sjö þúsund tonn af smjöri auk þrjú þúsund tonna til viðbótar í september en þetta er í fyrsta skipti í fleiri ár sem nauðsynlegt hefur verið í Japan að kaupa svo mikið magn af innfluttum mjólkurvörum.

Að sögn talsmanns landbúnaðarráðuneytisins er um 30 prósent minna af mjólkurvörum í umferð nú en á sama tíma í fyrra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK