Vilja banna Uber í Danmörku

Leigubílsstjórar hafa mótmælt starfsemi Uber.
Leigubílsstjórar hafa mótmælt starfsemi Uber. AFP

Samgöngustofnunin í Danmörku lagði í dag fram kvörtun til lögreglunnar vegna leigubílaþjónustunnar Uber. Er starfsemin sögð vera ólögleg.

Þjónustan er eingöngu í boði í Kaupmannahöfn og nefnist Uber Black en það er einskonar lúxustegund þjónustunnar þar sem einungis er boðið upp fínni bíla. Þá stendur einnig til að stofnaUberPOP þjónustuna, sem er ódýrari. Talsmaður samgöngustofnunarinnar sagði að forsvarsmenn Uber hefðu ekki sett sig í samband við stofnunina og hefðu því ekki fengið leyfi fyrir starfseminni.

Fyrirtækið var stofnað á árinu 2009 og virk­ar þjónustan þannig að viðskipta­vin­ir geta pantað sér bíl í gegn­um app í sím­an­um, fyr­ir mun lægri fjár­hæð en það kost­ar að taka hefðbund­inn leigu­bíl. Höfuðstöðvar Uber eru í San Francisco í Banda­ríkj­un­um og er fyrirtækið nú með starfsemi í um 200 borgum í 45 löndum.

Félög leigubílstjóra í Evrópu og Bandaríkjunum hafa mótmælt þjónustunni harðlega og segja að Uber fari ekki eftir gildandi lögum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK