„Áhrifa vörugjalds getur gætt áfram“

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda

Félag atvinnurekenda tekur undir hvatningu Alþýðusamband Íslands til neytenda um að fylgjast með verðbreytingum sem verða vegna skattabreytinga nú um áramótin. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá Ólafi Stephensen, framkvæmdastjóra félagsins.

Þar kemur fram að  tvær breytingar hafi farið fram á álagningu neysluskatta, annars vegar hafi verið „stigið skref í samræmingu skattþrepa virðisaukaskatts“ og hins vegar vörugjöld verið afnumin. Þá segir að félagið taki breytingunum fagnandi, en hvetur neytendur þó til að hafa tvennt í huga þegar verðbreytingar eru skoðaðar.

„Annars vegar hafa margir innflytjendur og seljendur heimilis- og raftækja þegar lækkað verð þeirra til samræmis við afnám vörugjaldanna. Þetta töldu mörg fyrirtæki sig verða að gera strax í september þegar frumvarp um afnám vörugjalda kom fram á Alþingi, einfaldlega til að tryggja sölu það sem eftir lifði árs. Ella hefðu verið líkur á að margir hefðu frestað kaupum á raftækjum fram yfir áramót. Þessi fyrirtæki hafa þannig tekið vörugjaldið á sig í nokkra mánuði og tryggt að neytendur nutu verðlækkunarinnar fyrr en ella, eins og sést glöggt í tölum Hagstofunnar,“ segir í tilkynningunni. 

„Hins vegar hefur FA bent á að ekki var fallizt á tillögur félagsins um að innflytjendur fengju endurgreitt vörugjald sem þeir hafa þegar greitt til ríkissjóðs af vörum sem þeir eiga óseldar á lager um áramót. Vegna þessa getur áhrifa vörugjalds gætt áfram í verði ýmissa vara nokkrar vikur fram á nýja árið og verðlækkunin til neytenda frestazt sem því nemur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK