Lækka tolla eða auka aðgang

Á Íslandi er mesta tollverndin í alifuglakjöti, unnum kjötvörum og …
Á Íslandi er mesta tollverndin í alifuglakjöti, unnum kjötvörum og svínakjöti. Árni Sæberg

Á Íslandi er mesta tollverndin á alifuglakjöti, unnum kjötvörum og svínakjöti en á nautakjöti, ostum, reyktu og söltuðu kjöti er hún hins vegar lægri. Ísland verður að lækka tolla og/eða veita betri markaðsaðgang fyrir landbúnaðarvöru til þess að auka gagnkvæman markaðsaðgang á Íslandi.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu starfshóps um tollamál á sviði landbúnaðar. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipaði hópinn þann 3. mars 2014 og var honum meðal annars falið að gera grein fyrir helstu núgildandi samningum um viðskipti með landbúnaðarvörur, að greina sóknarfæri sem kunna að vera til staðar í núgildandi samningunum, að athuga möguleika á gerð tvíhliða samninga við ný lönd og ríkjasambönd og gera úttekt á þróun tollverndar á helstu landbúnaðarvörum frá 1995.

Bæta markaðsaðgang fyrir sumar afurðir

Í skýrslunni segir að útflytjendur íslenskra landbúnaðarvara hafi markaðsaðgang fyrir helstu afurðir, en þó þurfi að bæta markaðsaðgang fyrir ákveðnar afurðir, svo sem mjólkurafurðir, vatn, bjór og sælgæti þar sem vaxandi tækifæri eru til útflutnings.

Líkt og að framan segir þarf að auka gagnkvæman markaðsaðgang og þarf í því skyni að lækka tolla eða veita betri markaðsaðgang fyrir landbúnaðarvörur. Samningar við ESB um aukinn gagnkvæman markaðsaðgang hafa staðið yfir frá 2012 og þrýst hefur verið á af Íslands hálfu að ljúka þeim. Fundur um efnið var fyrirhugaður í haust og aftur í febrúar en þeim var báðum frestað að beiðni Evrópusambandsins. Unnið er að því að ákveða nýjan fundartíma.

Innflutningur aukist um 10,5 milljarða

Árið 1995 gerðist Ísland aðili að Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO), auk þess hefur Ísland gert 25 fríverslunarsamnina við 35 ríki, ásamt mörgum tvíhliðasamningum um viðskipti með landbúnaðarvörur, svo sem við Evrópusambandið, Kína, Noreg, Sviss, Færeyjar og Grænland.

Ísland er því aðili að viðskiptasamningum við tæplega 70 ríki um inn- og útflutning landbúnaðarvara. Í skýrslunni kemur fram að heildarinnflutningur landbúnaðarvara nam tæpum 52 milljörðum árið 2013 en útflutningur var á sama tíma tæplega 8 milljarðar. Innflutningurinn hefur aukist um 10,5 milljarða á fjórum árum en útflutningurinn um einn milljarð.

Bæta þarf markaðsaðgang fyrir ákveðnar afurðir, svo sem mjólkurafurðir, vatn, …
Bæta þarf markaðsaðgang fyrir ákveðnar afurðir, svo sem mjólkurafurðir, vatn, bjór og sælgæti. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK