Vill mál Tchenguiz fyrir íslenska dómstóla

Breski kaupsýslumaðurinn Vincent Tchenguiz.
Breski kaupsýslumaðurinn Vincent Tchenguiz. Ljósmynd/Tom Stockill

Lögmaður slitastjórnar Kaupþings hyggst krefjast þess fyrir breskum dómstólum að skaðabótamál breska kaupsýslumannsins Vincent Tchenguiz gegn slitastjórninni verði tekið fyrir hjá íslenskum dómstólum. Málið var fyrst höfðað fyrir breskum dómstólum.

RÚV greindi fyrst frá málinu, en fjallað er um það á vef The Lawyer.

Tchenguiz höfðaði mál á hendur breska endurskoðunarfyrirtækinu Grant Thornton, tveimur starfsmönnum þess, slitabúi Kaupþings og Jóhannesi Rúnari Jóhannssyni, meðlimi í slitastjórninni, í fyrra vegna tjóns sem hann segist hafa orðið fyrir þegar efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, rannsakaði lánveitingar til hans og bróður hans, Roberts, sem var einn stærsti skuldari Kaupþings við fall bankans.

Tchenguiz fer fram á 2,2 milljarða punda, sem jafngildir um 447 milljörðum íslenskra króna, í skaðabætur vegna tjónsins.

Í lok janúarmánaðar fóru lögmenn slitastjórnar Kaupþings fram á að málinu yrði vísað frá dómi.

Tchenguiz bræðurnir kærðu efnahagsbrotadeildina en komust síðar að samkomulagi um bætur. Þeir telja að fyrirtækin tvö, Grant Thornton og Kaupþing, og starfsmenn þeirra þrír hafi lagt á ráðin um að hvetja til glæparannsóknar, sem hafi átt að nota til að ná fram eigin hagsmunum og valda Tchenguiz óbætanlegum skaða.

Slitastjórn Kaupþings hefur ítrekað að ekkert sé hæft í ásökununum.

Þá hefur Grant Thornton jafnframt höfðað mál á hendur Tchenguiz fyrir rógburð. Segir fyrirtækið ásakanir hans haldlausar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK