Sýna ekki Ungfrú Bandaríkin í mótmælaskyni

Ungfrú Bandaríkin 2013.
Ungfrú Bandaríkin 2013. AFP

Univision ætlar ekki að sýna frá fegurðarsamkeppninni Ungfrú Bandaríkin líkt og fyrirtækið hefur gert á liðnum árum til þess að mótmæla orðum Donalds Trump í garð mexíkóskra innflytjenda. Keppnin er að hluta til í eigu Trump.

Þar að auki ætlar Univision að slíta á öll önnur viðskiptaleg tengsl við Trump.

Þegar Trump tilkynnti forsetaframboð sitt í síðustu viku sagði hann að mexí­kósk­um inn­flytj­end­um í Bandaríkjunum fylgdu jafnan glæp­ir, fíkni­efni og nauðganir.

Univision er stærsta spænskumælandi sjónvarpsfyrirtæki Bandaríkjanna.

Trump hefur verið harðlega gagnrýndur síðan hann lét ummælin falla. Hann segist þó standa við orð sín.

Í viðtali við Fox News sagðist hann þurfa að höfða mál á hendur Univision vegna þessa, þar sem sjónvarpsstöðin er samningsbundnin til þess að sýna keppnina. „Þeir munu þurfa að borga mér fullt af peningum,“ sagði Trump.

Í frétt CNN Money kemur fram að Univision undirritaði nýlega fimm ára útsendingarsamning við fegurðarsamkeppnina.

Keppnin fer fram þann 12. júlí næstkomandi.

<blockquote class="twitter-tweet">

Univision wants to back out of signed <a href="https://twitter.com/MissUniverse">@MissUniverse</a> contract because I exposed the terrible trade deals that the U.S. makes with Mexico.

— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) <a href="https://twitter.com/realDonaldTrump/status/614077418089922560">June 25, 2015</a></blockquote><script async="" charset="utf-8" src="//platform.twitter.com/widgets.js"></script><div id="embedded-remove"> </div>
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK