Gjaldþrotaskiptum hjá fjárfestinum Róberti Melax var lokið hinn 22. júní síðastliðinn. Ekkert fékkst greitt upp í kröfur sem námu rúmum 478 milljónum króna.
Þetta kemur fram í Lögbirtingarblaðinu í dag. Róbert var úrskurðaður gjaldþrota hinn 4. júní 2014.
Róbert átti um tíma stóran hlut í Íslandsbanka og sat um leið í stjórn bankans. Þá átti hann hlut í Saga fjárfestingabanka, átti Jarðafélagið Yztafell ehf og kom að Hanza hópnum svokallaða, sem byggði upp stórt fjölbýlishús í Akrahverfinu í Garðabæ.
Róbert kom einnig að öðrum fasteignaverkefnum og var stór hluthafi í City Center Properties félaginu sem keypti átta stórar fasteignir í Osló og Bergen í Noregi. Í tilkynningu með þeim kaupum kom fram að félagið væri orðið eitt af 20 stærstu fasteignafyrirtækjum Noregs.
Róbert efnaðist vel á Lyfju, en apótekið var upphaflega stofnað árið 1996. Ásamt Róberti var Ingi Guðjónsson á bak við það, en Lyfja sameinaðist Lyfjabúðunum ehf. árið 2000. Þær voru í eigu Jóhannesar Jónssonar í Bónus, Guðmundu Reykjalín viðskiptafræðings og þriggja lyfjafræðinga. Árið 2004 seldi Róbert allan hlut sinn til Haga, sem urðu í framhaldinu eigendur alls fyrirtækisins.
Um tíma var hann einnig aðaleigandi og stjórnarformaður Dags Group, en félagið átti meðal annars BT, Skífuna og Senu. Árið 2000 greiddi hann hæstu opinberu gjöld í Reykjanesumdæmi, eða rúma 21 milljón króna.
Róbert virðist hafa tapað töluverðum eignum í hruninu. Meðal annars var fasteignafélagið Hanza-hópurinn tekinn til gjaldþrotaskipta eftir að hafa verið eigandi að stórum verkefnum á Arnarneshæð í Garðabæ.
Róbert hefur undanfarin ár verið búsettur erlendis, en lögheimili hans er skráð í Afríku. Á síðasta ári óskaði hann eftir því að kaupa Ljósvetningabúð í Þingeyjarsveit, en hann hugðist byggja þar upp einhverskonar ferðaþjónustu.