Taka Ungfrú Bandaríkin að sér

Donald Trump með sigurvegara.
Donald Trump með sigurvegara. AFP

Sjónvarpsstöðin Reelz hefur tekið það að sér að sýna frá fegurðarsamkeppninni Ungfrú Bandaríkin. Keppninni hefur verið kastað á milli stöðva síðan Donald Trump talaði með niðrandi hætti um mexíkóska innflytjendur, en Trump á keppnina að hluta.

Sjónvarpsstöðin Univision var fyrst til þess að gefa keppnina frá sér en síðar sagðist NBC ekki heldur ætla að sýna frá henni og var keppnin, sem fer fram þann 12. júlí, því orðin heimilislaus.

Aðdáendur voru margir orðnir áhyggjufullir og komst kassamerkið #SavetheSash í umferð á samfélagsmiðlum eftir að undirskriftalisti var stofnaður þar sem NBC var beðið um að endurskoða ákvörðunina.

Reelz tilkynnti á Facebook að stöðin myndi sýna keppnina og lét kassamerkið einmitt fylgja. 

Forstjóri Reelz, Stan Hubbard, sagði í samtali við CNN að ákvörðunin væri ekki af pólitískum toga. Keppnin væri einfaldlega stórmerkilegur sjónvarpsviðburður. Þá sagði hann að Trump myndi líklega tapa á keppninni í ár, en sjónvarpsstöðin hyggst borga um 100 þúsund dollara, eða um 13 milljónir króna, fyrir að sýna frá henni. Þá sagðist hann vera sammála sjónarmiðum Univision og NBC um ummæli Donalds Trump og sagði þau vera fáránleg.

Meðal annarra fyrirtækja sem hafa slitið á tengslin við Trump sökum ummælanna er Macy's, en fyrirtækið sagðist í vikunni ætla að taka fatalínu hans úr sölu.

Um­mæl­in lét Trump falla þegar hann til­kynnti fram­boð í for­vali Re­públi­kanaflokksins um for­setafram­bjóðanda flokks­ins.  „Þeir koma með fíkni­efni, þeir koma með glæpi, þetta eru nauðgarar og ég býst við að sum­ir þeirra séu ágæt­ir, en ég tala við landa­mæra­verði og þeir segja mér hvað við fáum,“ sagði hann í ræðu sinni hinn 16. júní. 

Exciting news for those who want to #SavetheSash! The #MissUSA pageant is coming to REELZ.

Posted by ReelzChannel on Thursday, July 2, 2015
Nia Sanchez, Ungfrú Bandaríkin 2014.
Nia Sanchez, Ungfrú Bandaríkin 2014. AFP



mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK