Verðbólgan 1,9%

Verð á flugfargjöldum til útlanda lækkaði um 24,6%
Verð á flugfargjöldum til útlanda lækkaði um 24,6% Víkurfréttir/Hilmar Bragi

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í september 2015 lækkaði um 0,39% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,9% sem þýðir að verðbólgan er enn undir verðbólgumarkmiðum Seðlabanka Íslands sem eru 2,5%.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis  lækkaði um 0,62% frá ágúst og hefur og vísitala án húsnæðis  hækkað um 0,5% undanfarna tólf mánuði.

Flugmiðinn lækkaði um tæpan fjórðung í verði

Verð á flugfargjöldum til útlanda lækkaði um 24,6% (áhrif á vísitöluna -0,43%). Sumarútsölur eru að mestu gengnar til baka og hækkaði verð á fötum og skóm um 4,4% (0,19%) en verð á bensíni og olíum lækkaði um 5,3% (-0,19%).

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK