Einungis eldri borgarar fá álagningarseðil

Orkuveita Reykjavíkur er móðurfélag Veitna.
Orkuveita Reykjavíkur er móðurfélag Veitna. mbl.is/Árni

Héðan í frá munu einungis viðskiptavinir sem eru 67 ára og eldri fá álagningarseðil í bréfpósti frá Veitum, dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur.  Á næstu árum verður bréfasendingum með álagningarseðlum alveg hætt.

Langflestir álagningarseðlar vegna vatns- og fráveitugjalda verða því sendir út rafrænt og munu þeir birtast í heimabönkum viðskiptavina og á Mínum síðum Veitna. 

Greiðslum er dreift á níu mánuði ársins, þar sem engin greiðsla er í janúar, nóvember og desember.

Á árinu 2011 var álagning vatns- og fráveitugjalda hjá Veitum skilin frá álagningu fasteignagjalda sveitarfélaganna og er heildarfjöldi álagningarseðla er um 70 þúsund. Álagningarseðlar sem sendir eru í bréfpósti eru um 12.700 talsins.

Afsláttur féll niður um áramót

Veitur reka vatnsveitur í Reykjavík, á Akranesi, í Borgarnesi, á Álftanesi og í Stykkishólmi og Grundarfirði auk nokkurra smærri byggðakjarna í uppsveitum á Suður- og Vesturlandi.

Fráveitur Veitna eru í Reykjavík, á Akranesi og í Borgarbyggð. Vatns- og fráveitugjöldin hjá Veitum fylgja byggingavísitölu en ekki fasteignamati eins og algengt er. Hækkun hennar á árinu 2015 var 6,04 prósent.

Í tilkynningu frá Veitum er bent á að unnið hafi verið að mikilli uppbyggingu fráveitna á Akranesi, í Borgarbyggð og á Kjalarnesi í Reykjavík síðasta áratuginn.

Markmiðið er að koma fráveitumálum í það horf að þau standist opinberar kröfur. Verkefnið felur í sér lagningu nýrra stofnræsa og sjólagna, byggingu dælu- og hreinsistöðva auk fjögurra lífrænna hreinsistöðva í uppsveitum Borgarfjarðar, sem allar eru komnar í notkun.

Frestur var gerður á framkvæmdum í mars 2011 með samþykkt Plansins, aðgerðaáætlunar í fjármálum OR. Á

árinu 2015 var þráðurinn hins vegar tekinn upp að nýju og framkvæmdum á að ljúka fyrir árslok 2016. Meðan á frestinum stóð var viðskiptavinum í Borgarbyggð, þar sem verð er hærra en í Reykjavík og á Akranesi, veittur tímabundinn afsláttur af fráveitugjöldum. Hann féll niður nú um áramótin.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK