Dagsektir lagðar á Loftið

Loftið í Austurstræti má ekki heita Loftið.
Loftið í Austurstræti má ekki heita Loftið. Mynda af Facebook-síðu Loftsins.

Neytendastofa hefur lagt dagsektir á Boltabarinn ehf. þar til fyrirtækið hefur farið að ákvörðun Neytendastofu.

Í desember 2014 var Boltabarnum ehf. bönnuð notkun heitisins Loftið þar sem það væri til þess fallið að valda ruglingshættu við auðkenni Loft Bar sem rekinn er af Farfuglum ses. 

Ákvörðun Neytendastofu var staðfest með úrskurði áfrýjunarnefndar neytendamála í október 2015 að því leyti að Boltabarnum ehf. væri bannað að nota auðkennið Loftið í núverandi mynd.

Þar sem Boltabarinn hefur enn ekki farið að ákvörðun Neytendastofu og úrskurði áfrýjunarnefndar hefur Neytendastofa lagt fimmtíu þúsund króna dagsektir á Boltabarinn ehf. þar til fyrirtækið gerir viðeigandi ráðstafanir.

Frétt mbl.is: Loft hafði betur en Loftið

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK