Skúli opnar hótel á Suðurnesjum

Skúli Mogensen stofnaði flugfélagið WOW air árið 2012.
Skúli Mogensen stofnaði flugfélagið WOW air árið 2012. mbl.is/Rax

Félagið TF-KEF hefur fest kaup á þremur fasteignum sem áður voru í eigu bandaríska hersins  á gamla varnarliðssvæðinu á Suðurnesjum. Félagið kaupir eignirnar af Kadeco, rekstrarfélagi svæðisins. Félagið TF-KEF er í eigu Títan fasteigna, systurfélags Títan fjárfestingafélags, sem er í eigu Skúla Mogensen.

Um er að ræða þrjár blokkir sem eru um það bil 6.500 fermetrar en tvær þeirra verða nýttar undir hótelrekstur. Sú þriðja verður í langtímaleigu og er nú verið að standsetja þar 24 íbúðir. 

Í hinum tveimur fasteignunum verður rekið nútímalegt lággjalda flughótel með um 100 herbergjum og hótelíbúðum. Fyrirhuguð opnun er í júlí á þessu ári, segir í fréttatilkynningu.

Lögð verður áhersla á gesti sem staldra stutt við í svokölluðum „stopover“ flugum eða þá sem kjósa að enda ferðalagið sitt nálægt Keflavíkurflugvelli til að ná morgunflugi næsta dag.

„Ég er mjög ánægður að vera kominn á heimaslóðir enda fæddur í Keflavík og hlakka til að hefja uppbyggingu á svæðinu,“ er haft eftir Skúla Mogensen, eiganda Títan fasteigna, í fréttatilkynningu. „Ég er sannfærður um að Suðurnesin eigi mikið inni enda kallar stækkun flugvallarins og áframhaldandi aukning ferðamanna á mikla fjárfestingu og uppbyggingu á svæðinu sem ætti að verða öllum til góða. Í rekstri hótelsins verður leitast eftir því að eiga gott samstarf með ferðaþjónustunnui á Suðurnesjum og kynna fyrir gestum þær perlur sem Reykjanesið hefur að geyma.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK