Rekinn þegar skattsvikin komust upp

Stofnuð voru sýndarfyrirætki til að svíkja fé úr virðisaukaskattkerfinu.
Stofnuð voru sýndarfyrirætki til að svíkja fé úr virðisaukaskattkerfinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fyrrverandi starfsmaður ríkisskattstjóra sem gegndi lykilhlutverki við meint hundruð milljóna króna skattsvik starfaði ennþá hjá embættinu þegar rannsókn málsins hófst árið 2010.

Í samtali við mbl segist Skúli Eggert Þórðarson, ríkisskattstjóri, ekki ætla að tjá sig efnislega um málið enda sé það í ákærumeðferð hjá ríkissaksóknara. „Þessi maður var tekinn og settur í gæsluvarðhald þegar rannsókn hófst og hefur ekki komið hingað síðan,“ segir Skúli.

Að sögn Skúla starfaði maðurinn hjá skattstofunni í Hafnarfirði.

Upp komst um málið í september árið 2010 en svikin eru sögð hafa farið þannig fram að átta einstaklingar settu á fót sýndarfyrirtæki í þeim eina tilgangi að svíkja fé út úr virðisaukaskattkerfinu.

Skúli segir manninn hafa starfað á virðisaukaskattsviði.

Hafði starfað hjá skattinum í nokkur ár

Maðurinn hafði að sögn Skúla starfað hjá ríkisskattstjóra í nokkur ár og var hann starfsmaður skattstofunnar í Reykjavík áður en embættið var lagt niður og verkefni þess voru flutt til ríkisskattstjóra í janúar 2010.

Skúli Eggert Þórðarson, ríkisskattstjóri.
Skúli Eggert Þórðarson, ríkisskattstjóri. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Vísir greindi fyrst frá málinu í morgun en rannsókn þess er sagt hafa lokið árið 2013 og hefur það síðan verið á borði rík­is­sak­sókn­ara. Það verður að sögn Vísis tekið fyr­ir í Héraðsdómi Reykja­ness í næsta mánuði.

Mbl.is óskaði eft­ir ákæru í mál­inu frá embætti rík­is­sak­sókn­ara. Þar feng­ust hins veg­ar þær upp­lýs­ing­ar að ákær­an yrði ekki gef­in út op­in­ber­lega fyrr en tryggt væri að hún hafi verið kynnt öll­um sak­born­ing­um.

Í frétt Vísis segir að sýndarfyrirtækin hafi ekki haft neina raunverulega starfsemi en fengið í krafti falsaðra gagna og aðgangs að fyrrnefndum starfsmanni Ríkisskattstjóra stórfé vegna byggingar þriggja húsa sem aldrei voru reist.

Frétt mbl.is: Sviku hundruð milljónir út úr skattkerfinu

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK