Biðröð eftir nýjum strigaskóm

Það var strax mikil örtröð þegar opnað var.
Það var strax mikil örtröð þegar opnað var. mynd/Ólafur Alexander Ólafsson

Um 30 manns biðu í biðröð fyrir utan skóverslunina Húrra Reykjavík í morgun vegna forsölu á nýjum skóm sem skóframleiðandinn Adidas og tónlistarmaðurinn Pharrell Williams hafa hannað. Aðeins koma um 40 pör af skónum til landsins og segir Sindri Snær Jensson, einn eigandi verslunarinnar, að hægt sé að selja skóna strax aftur á netinu fyrir um tvöfalt hærra verð en þeir fást á í búðinni.

Skórnir sem um ræðir eru svokallaðir NMD skór úr línunni Human race sem Adidas og Williams hönnuðu. Segir Sindri að þeir komi út í fimm litum, en að tveir litir verði seld í verslun Húrra á Hverfisgötu. 

Skórnir umtöluðu.
Skórnir umtöluðu. mynd/Ólafur Alexander Ólafsson

„Það er orðið mjög algengt að það séu raðir eftir strigaskóm hjá okkur þegar ný pör koma,“ segir hann aðspurður um þennan mikla áhuga fólks á skónum. „Þetta er vara sem fólk hefur mikinn áhuga á að eignast.“

Skórnir kosta 29.990 krónur, en Sindri segir að það merkilega sé að hægt sé að selja þá á mun hærra verði á netinu strax á eftir. „Það merkilega við þetta er að þú getur keypt hann og væntanlega selt hann á netinu á 600 dollara.“ 

Um 30 manns biðu fyrir utan verslunina áður en opnað …
Um 30 manns biðu fyrir utan verslunina áður en opnað var í morgun. mynd/Ólafur Alexander Ólafsson

Nefnir hann sem dæmi um mikla eftirspurn að aðeins hafi verið framleidd 2.800 pör í svörtum lit, sem er annar liturinn sem Húrra fékk, og því rjúki skórnir út strax allsstaðar um heiminn.

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem mikil ásókn hefur verið í skó sem búðin selur. Fyrr á árinu fjallaði mbl.is um að áhugasamir kaupendur hefðu tjaldað í tvo daga fyrir utan búðina til að vera fyrstir til að kaupa Yeezy Boost 350 Pira­te Black skó sem Kanye West hannaði fyr­ir Adi­das.

Sindri Snær Jensson hjá Húrra Reykjavík.
Sindri Snær Jensson hjá Húrra Reykjavík. Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK