Ársbirgðir af kleinuhringjum í boði

Krispy Kreme-kleinuhringir.
Krispy Kreme-kleinuhringir.

Hundrað fyrstu sem mæta á opnun Krispy Kreme í Smáralind 5. nóvember fá einn kassa af Original Glazed-kleinuhringjum á viku í ár. Þá fá næstu hundrað einn kassa á mánuði.

Þeir sem vilja árskortin þurfa hins vegar að vera snemma á ferðinni en staðurinn opnar klukkan 6 um morguninn. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Krispy Kreme á Íslandi. 

Fyrri frétt mbl.is: Krispy Kreme opnar í Hagkaup í Smáralind

Fyrirkomulagið minnir óneitanlega á þegar Dunkin‘ Donuts var opnað á Laugavegi í ágúst í fyrra. Þar söfnuðust hundruð manna í röð til þess að freista þess að fá árskort. Þar voru það reyndar aðeins fyrstu fimmtíu viðskiptavinirnir sem fengu árskort upp á kassa í hverri viku.

Fyrri frétt mbl.is: Biðröð fyrir utan Dunkin' Donuts

Krispy Kreme Inc. og Hag­ar hf. undirrituðu í síðasta mánuði sam­starfs­samn­ing en staðurinn mun standa í Hagkaup í Smáralind. Nú þegar starf­ræk­ir kleinu­hringj­aris­inn versl­an­ir í um 25 lönd­um með yfir 1.100 úti­bú­um en Ísland er fyrst Norður­landaþjóða til þess að bætast í hópinn.

Röðin fræga þegar að Dunkin' Donuts opnaði á Laugavegi í …
Röðin fræga þegar að Dunkin' Donuts opnaði á Laugavegi í fyrra. mbl.is/Styrmir Kári
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK