Krispy Kreme opnar í Hagkaup í Smáralind

Starfsmenn Krispy Kreme baka kleinuhringina frá grunni á hverjum degi …
Starfsmenn Krispy Kreme baka kleinuhringina frá grunni á hverjum degi og skreyta og verður því boðið upp á ferska kleinuhringi daglega.

Fyrsta Krispy Kreme búðin hér á landi verður opnuð í Hagkaup í Smáralind þann 5. nóvember en Krispy Kreme Inc. og Hagar hf hafa nú undirritað samstarfssamning. Nú þegar starfrækir kleinuhringjarisinn verslanir í um 25 löndum með yfir 1.100 útibúum og hefur Ísland því loks bæst í þennan stóra hóp, fyrst Norðurlandaþjóða. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Þar segir að starfsmenn Krispy Kreme baki kleinuhringi frá grunni á hverjum degi og  skreyta og verður því boðið upp á ferska kleinuhringi daglega. Einnig hafa kaffisérfræðingar Te&Kaffi ásamt Krispy Kreme á Íslandi, framleitt hágæða kaffiblöndu sem verður einungis í boði á Krispy Kreme.

Fyrri frétt mbl.is: Ræða við Krispy Kreme

Fyrri frétt mbl.is: Uppskriftin geymd í læstu öryggishólfi

„Þetta er stórskemmtileg viðbót í verslanir okkar og við erum afskaplega ánægð með að geta boðið viðskiptavinum okkar upp á þessa nýjung strax í byrjun nóvember,” er haft eftir Gunnari Inga Sigurðssyni, framkvæmdastjóra Hagkaups í tilkynningu.

„Það gleður mig mikið að fá það verkefni að kynna Krispy Kreme fyrir Íslendingum,” er síðan haft eftir Viðari Brink, rekstarstjóra Krispy Kreme á Íslandi. „Ég og okkar frábæra starfsfólk hlökkum til að taka á móti ykkur með bros á vör og leyfa ykkur að smakka hina frægu Krispy Kreme.“

Krispy Kreme var stofnað í Bandaríkjunum árið 1937, af Vernon Rudolph og eru í dag með yfir 1.100 útibú í meira en 25 löndum m.a. Ástralíu, Afríku, Suður-Ameríku og Asíu. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Winston-Salem, Norður-Karólínu og er fyrirtækið skráð á markað Nasdaq: KKD. Original Glazed kleinuhringurinn hefur ekki breyst síðan hann var fyrst búin til árið 1937. Uppskrift hans hefur aldrei verið gefin út og er því leyndarmál.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK