Óska eftir fólki í vörukynningar

Hér má sjá vænt­an­legt út­lit versl­un­ar Costco í Kaup­túni sem …
Hér má sjá vænt­an­legt út­lit versl­un­ar Costco í Kaup­túni sem opnar í næsta mánuði. Teikn­ing/​KRADS & THG arki­tekt­ar

Nú eru hafnar ráðningar hjá sérstöku fyrirtæki sem mun sjá sértaklega um allar vörukynningar í verslun Costco í Kauptúni. Leitað er að áhugasömum aðilum sem finnst gaman að ræða við fólk um hágæða vörur „og ekki skemmir fyrir ef þú hefur áhuga á mat,“ eins og segir í atvinnuauglýsingunni.  Störfin felast í að kynna matvörur, drykkjarvörur og búsáhöld. 

Fyrirtækið heitir Warehouse Demo Services og er það sagt vinna náið með Costco í Bretlandi en starfsmenn þess sjá um allar vörukynningar í verslunum Costco. 

Í atvinnuauglýsingunni segir að störfin hjá Warehouse Demo Services henti mjög vel fyrir aðila sem vilja starfa fyrir alþjóðlegt fyrirtæki, fá góða þjálfun og „vera hluti af stórum hópi af eldhressum starfsmönnum þar sem gæði og góð þjónusta er lykilatriði.“

Um hlutastörf er að ræða og er aldurstakmarkið 18 ár.

Costco verður opnað í Kauptúni 23. maí. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK