Verð hlutabréfa í Icelandair lækkaði um rétt tæp 4% þegar opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni í dag. Það sem af er degi nema viðskipti með bréfin tæpum 42 milljónum króna.
Verkfall flugvirkja Icelandair hófst klukkan sex í gærmorgun en búið er að aflýsa sjö af fimmtán flugferðum til og frá Íslandi og áfangastaða í Evrópu í dag. Þá er löng biðröð byrjuð að myndast fyrir utan söluskrifstofu Icelandair við innritunarborðin í flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Greint hefur verið frá því að símakerfi flugfélagsins hefði legið niðri um stund vegna álagsins og á samfélagsmiðlum má einnig finna fjöldann allan af reiðilegum kvörtunum.
Magnús Jónsson aðstoðarríkissáttasemjari ætlar að vera í sambandi við deiluaðila í kjaraviðræðum Flugvirkjafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins vegna Icelandair eftir hádegi í dag vegna áframhaldandi fundahalda. Hann býst við því að næsti fundur verði haldinn seinnipartinn í dag.