Uppsagnir á Keflavíkurflugvelli

Frá Keflavíkurflugvelli.
Frá Keflavíkurflugvelli. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Isavia tilkynnti í dag á fundum með starfsmönnum að félagið hafi gripið til uppsagna á Keflavíkurflugvelli í kjölfar brotthvarfs Wow air. Um er að ræða starfsmenn sem starfa meðal annars við öryggisleit og farþegaþjónustu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia.

Þar segir, að uppsagnirnar nái til 19 starfsmanna og til viðbótar bjóðist 15 starfsmönnum lægra starfshlutfall.

Uppsagnirnar aðallega vegna brotthvarfs WOW air

Áður hafði verið dregið úr sumarráðningum hjá Isavia ásamt því að fjölmörgum fyrirhuguðum ráðningum hafði verið frestað og breytingar hafa verið gerðar á fyrirkomulagi vaktakerfa. Þessar aðgerðir hafa þegar náð til ýmissa starfsstöðva Isavia, þar á meðal til skrifstofustarfa, að því er Isavia greinir frá.

„Uppsagnirnar koma aðallega til vegna brotthvarfs WOW air í mars. Einnig hefur breytt flugáætlun Icelandair í kjölfar kyrrsetninga á MAX vélum Boeing haft áhrif. Umsvif í þjónustu vegna millilandaflugs eru minni en áætlanir gerðu ráð fyrir, því er óhjákvæmilegt annað en að grípa til þessara aðgerða.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK