40 hjá Tölvutek án vinnu

Fjörtíu starfsmenn Tölvuteks misstu vinnu sína í dag þegar ákveðið …
Fjörtíu starfsmenn Tölvuteks misstu vinnu sína í dag þegar ákveðið var að hætta rekstri félagsins. Kristinn Magnússon

Daníel Helgason, rekstrarstjóri Tölvuteks, segir í samtali við mbl.is að 40 starfsmenn hafi misst vinunna þegar rekstri verslana Tölvuteks var hætt í dag. Hann segir starfsmönnum hafi verið tilkynnt um málið á starfsmannafundi í morgun.

Tilkynning um að rekstri Tölvuteks væri hætt var birt á Facebook-síðu fyrirtækisins í morgun., en ekki kemur fram nákvæmlega hver ástæða þess sé.

Daníel segist ekki ætla að tjá sig frekar um málið og bendir á að Hafþór Helgason, framkvæmdastjóri Tölvuteks, mun ræða við fjölmiðla á morgun þegar gengið hafi verið frá „ákveðnum þáttum.“

Starfsmenn Tölvuteks munu hafa samband við viðskiptavini sem hafa haft búnað í viðgerð hjá fyrirtækinu svo hægt sé að sækja hann, en þeir sem hafa pantað með greiðslukorti og hafa ekki fengið vöru afhenta er ráðlagt að stöðva greiðslurnar.

Fyrirtækið hefur verið með stærstu dreifingar- og söluaðilum á tölvum og tölvubúnaði til einstaklinga.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK