Verkfall flugmanna Bláfugls er hafið

Af vef Bluebird Nordic

Þann 1. febrúar kl. 00:01 hófst verkfall flugmanna FÍA hjá Bluebird Nordic (BBN). Ákvörðun um verkfallið var tekin með lögmætum hætti í samræmi við ákvæði laga um stéttarfélög og vinnudeilur.

Verkfallsaðgerðirnar fela í sér ótímabundið verkfall en nánar tiltekið er átt við að vinna samkvæmt ákvæðum kjarasamnings falli niður að öllu leyti á meðan verkfall stendur yfir, að því er Félag íslenskra atvinnuflugmanna greinir frá á vef sínum. 

Flugmenn teknir af vöktum

„Sem viðbrögð við verkfallinu hefur Bluebird Nordic nú tekið umrædda FÍA flugmenn af flugvöktum frá þeim tíma sem verkfallið hófst og mannað þær með gerviverktökum sem ganga í störf verkfallsmanna og er því um skýrt verkfallsbrot að ræða,“ segir FÍA.

Fram kemur, að þegar FÍA flugmönnum var sagt upp þann 30. desember hafi hefðbundnar samningsviðræður verið í gangi. Samningsaðilar höfðu fundað fimm sinnum og unnið hafi verið eftir viðræðuáætlun sem lögð var fram af SA og BBN. Deilan er nú hjá embætti ríkissáttasemjara.

Telur að um ólögmætar uppsagnir sé að ræða

„FÍA telur að um ólögmætar uppsagnir sé að ræða og með þeim hafi verið brotið gegn 4. gr. laga um stéttarfélög og vinnudeilur auk þess sem vegið er að stjórnskrárvörðum rétti til að vera í stéttarfélagi.

Flugfélagið hefur jafnframt lýst því yfir að hér eftir muni það einungis notast við „sjálfstætt starfandi flugmenn” eða gerviverktaka sem er ætlað að ganga í störf flugmanna á kjarasamningi. Gerviverktakarnir eru ráðnir í gegnum áhafnaleigu sem ekki er skráð á Íslandi eins og lög gera ráð fyrir og starfa á kjörum sem eru langt undir lágmarkskjörum kjarasamninga,“ segir FÍA

Hafna því að samningurinn sé útrunninn

Vísað er til þess að kjarasamningur FÍA og BBN sé enn í gildi og starfa flugmenn félagsins samkvæmt honum.

„BBN hefur haldið fram að umræddur samningur sé útrunninn en FÍA hafnar því og vísar til yfirstandandi kjarasamningsviðræðna. Í núgildandi kjarasamningi kemur skírt fram að ráðning eða leiga flugmanna til Bláfugls, sem ekki eru félagar í FÍA, skuli ekki á neinn máta tefja fyrir stöðuhækkunum og öðrum framgangi fastráðinna flugmanna Bláfugls, sem eru löglegir félagar í FÍA, né heldur leiða til uppsagna félagsmanna FÍA innan Bláfugls,“ segir ennfremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK