Einokunarmál gegn Facebook fellt niður

Kæra gegn samfélagsmiðlinum Facebook var felld niður í dag. Fyrirliggjandi …
Kæra gegn samfélagsmiðlinum Facebook var felld niður í dag. Fyrirliggjandi gögn í málinu þóttu ekki fullnægjandi. AFP

Kæra gegn Facebook um einokunarstöðu þeirra á samfélagsmiðlamarkaðnum var felld niður fyrr í kvöld eftir að dómarinn taldi gögnin í málinu ekki fullnægjandi.

Í desember á síðasta ári stefndi viðskiptaeftirlit bandarísku alríkisstjórnarinnar (FTC) ásamt 46 af ríkjum Bandaríkjanna Facebook fyrir brot á samkeppnisreglum. Var meðal annars farið fram á að samfélagsmiðillinn afsalaði sér eignarhaldi á miðlunum Instagram og WhatsApp sökum þess að Facebook var búið að koma sér í einokunarstöðu á samfélagsmiðlamarkaðnum.

James Boasberg, dómarinn í málinu, taldi fyrirliggjandi gögn ekki sýna fram á með skýrum hætti hversu mikil völd Facebook hefði í raun og veru. Var málið talið byggjast á óljósum staðhæfingum um að samfélagsmiðillinn stjórnaði meira en 60% af markaðnum án þess þó að skilgreint væri hvaða mælingar átt væri við.

Facebook hefur enn ekki sent frá sér tilkynningu vegna málsins en virði fyrirtækisins hefur hækkað og stendur nú í meira en einni billjón bandaríkjadala, sem gera ríflega 123 billjónir íslenskra króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK