Samkomulagið birt – „alvarleg brot“

Samsett mynd

Niðurstaða fjármálaeftirlitsins er að stjórn og bankastjóri Íslandsbanka hafi ekki með fullnægjandi hætti innleitt stjórnarhætti og innra eftirlit sem tryggir skilvirka og varfærna stjórnun sem birtist meðal annars í því að ekki var tryggt að bankinn uppfyllti lagakröfur sem gilda um veitingu fjárfestingarþjónustu og fylgni við innri reglur sem stjórn hans hefur sett.

Svo segir í tilkynningu á vef Seðlabankans um samkomulag bankans við Íslandsbanka vegna brota hins síðarnefnda við sölumeðferð eignarhluta ríkisins í bankanum. Sáttin hefur nú verið birt. 

Á fimmtudag var greint frá því að Íslandsbanki hafi fallist á að greiða 1,2 millj­arð króna í sekt vegna máls­ins. 

Frummat fjármálaeftirlitsins var sent til Íslandsbanka 30. desember og með bréfi, dagsett 6. janúar, lýsti Íslandsbanki yfir vilja til að ljúka málinu með sátt. 

Í tilkynningunni segir að á fundi fjármálaeftirlitsnefndarinnar 7. júní var málið talið að fullu upplýst og forsendur fyrir hendi til að ljúka því með sátt við Íslandsbanka.

Með undirritun sáttarinnar hefur bankinn gengist við því að hafa gerst brotlegur við nánar tiltekin ákvæði laga um markaði fyrir fjármálagerninga og laga um fjármálafyrirtæki og skuldbundið sig til að grípa til úrbóta.“

Íslandsbanka ber að skila úttekt á úrbótum bankans fyrir 1. nóvember á þessu ári. 

Margvígsleg brot

Meðal brota sem lýst er í sáttinni eru að Íslandsbanki hljóðritaði ekki símtöl, veitti viðskiptavinum rangar upplýsingar um skilmála útboðsins og fylgdi ekki skilyrðum laga við mat á umsóknum viðskiptavina um að teljast fagfjárfestar. 

Þá greip bankinn ekki til fullnægjandi ráðstafana til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra, s.s. í tengslum við þátttöku stjórnenda og starfsmanna bankans í útboðinu og með fullnægjandi aðskilnaði starfssviða, og bankinn gerði ekki áhættumat í tengslum við aðkomu sína að söluferlinu.

Þá veitti Íslandsbanki Bankasýslu ríkisins villandi upplýsingar um flokkun fjárfesta sem tóku þátt í útboðinu. Með þeirri háttsemi að bjóða almennum fjárfestum að taka þátt í útboði sem eingöngu var ætlað hæfum fjárfestum virti Íslandsbanki ekki útboðsskilmála Bankasýslunnar. 

Loks var Íslandsbanki ekki talinn uppfylla að öllu leyti skylduna til að starfa heiðarlega, af sanngirni og fagmennsku í samræmi við eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti, með trúverðugleika fjármálamarkaðarins og hagsmuni viðskiptavina að leiðarljósi við undirbúning og framkvæmd útboðsins.

„Háttsemi Íslandsbanka sem lýst er í sáttinni felur í sér alvarleg brot á mikilvægum ákvæðum laga um markaði fyrir fjármálagerninga og laga um fjármálafyrirtæki,“ segir að lokum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK