Of mikið að endurnýja alla stjórnina

Ólafur telur varhugavert að endurnýja alla stjórn Íslandsbanka.
Ólafur telur varhugavert að endurnýja alla stjórn Íslandsbanka. Samsett mynd

Birta lífeyrissjóður telur rétt að breytingar verði gerðar á stjórn Íslandsbanka. Sjóðurinn telur þó ekki þörf á að skipta allri stjórn bankans út. Þá treystir lífeyrissjóðurinn því að starfslokasamningur fyrrverandi bankastjóra hafi verið í samræmi við ráðningarsamning og lög, hefur hann því ekki krafist upplýsinga um samninginn. 

Birta á 1,62% hlut í Íslandsbanka og er þar með níundi stærsti hluthafi bankans.

Hlut­hafa­fund­ur Íslands­banka verður hald­inn á föstu­dag­inn í næstu viku, 28. júlí. Á fund­in­um verður fjallað um sátt bank­ans við fjár­mála­eft­ir­lit Seðlabanka Íslands (FME) og viðbrögð Íslands­banka við henni. Einnig mun fara fram kjör í stjórn bank­ans.

Sjö sæti eru í stjórn bank­ans. Í vikunni voru til­nefn­ing­ar Banka­sýslu rík­is­ins og til­nefn­ing­ar­nefnd­ar Íslands­banka birt­ar. Af þeim sjö sem eru til­nefnd­ir eru fjór­ir stjórn­ar­menn. Í skýrslu til­nefn­ing­ar­nefnd­ar Íslands­banka kem­ur fram að Finn­ur Árna­son stjórn­ar­formaður, Guðrún Þor­geirs­dótt­ir, vara­formaður stjórn­ar, og Ari Daní­els­son stjórn­ar­maður, hafi ekki gefið kost á sér til áfram­hald­andi stjórn­ar­setu.

Stjórn Íslandsbanka. Finn­ur Árna­son (efstur til vinstri á mynd), Guðrún …
Stjórn Íslandsbanka. Finn­ur Árna­son (efstur til vinstri á mynd), Guðrún Þor­geirs­dótt­ir (efst til hægri á mynd) og Ari Daní­els­son (neðstur til vinstri á mynd) gáfu ekki kost á sér til áfram­hald­andi stjórn­ar­setu. Agnar Tómas Möller, Anna Þórðardóttir, Valgerður Hrund Skúladóttir og Frosti Ólafsson sitja í stjórn og eru tilnefnd til áframhaldandi stjórnarsetu. Samsett mynd

Býst við almennum framboðum

Í skýrslu tilnefningarnefndar kemur fram að nefndin hafi fundað með hluthöfum og að skiptar skoðanir hafi verið í hluthafahópnum um hversu miklar breytingar ætti að gera á stjórn. Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu, segir sjóðinn ekki hafa gert kröfu um að allri stjórninni yrði skipt út.

„Okkar skilaboð voru að það þyrfti að fara fram einhver endurnýjun en við guldum varhug við því að endurnýja hana alla í heild sinni. Þetta er auðvitað stórt og mikið fyrirtæki og það er varhugavert að endurnýja of hratt og gera einhverja hallarbyltingu og skipta öllum út. Við vorum ekki þar,“ segir Ólafur í samtali við mbl.is.

„Við lögðum ekki til að einn eða tveir eða þessir eða hinir ættu að fara. Við sögðum bara að okkur fyndist almennt hollt fyrir félagið að endurnýja umboð sitt og jafnvel gera einhverjar breytingar við þessar aðstæður. Spurt var, og okkur er ljúft og skylt að svara, að okkur fannst of mikið að endurnýja alla stjórnina.“

Almennur framboðsfrestur til stjórnar rennur út á sunnudaginn. Ólafur telur allt eins líklegt að einhverjir bjóði sig fram.

Lögum og reglum fylgt

All­ir nefnd­ar­menn stjórn­ar­flokk­anna í fjár­laga­nefnd Alþingis hafa farið fram á starfslokasamningur Birnu Einarsdóttur, fyrrverandi bankastjóra Íslandsbanka, verði birt­ur. Nefndin hefur ekki fengið svör frá stjórn Íslands­banka.

Ólafur segir Birtu ekki hafa gert slíka kröfu:

„Við einfaldlega trúum því sem bankinn segir, að samningurinn sé í samræmi við ráðningarsamning og í samræmi við lög og reglur. Það er auðvitað innri endurskoðandi í þessu félagi og ef að það er eitthvað ekki eins og félagið upplýsir um, hlýtur það á endanum að koma upp.“

Birna Einarsdóttir lét af störfum sem bankastjóri 28. júní.
Birna Einarsdóttir lét af störfum sem bankastjóri 28. júní. mbl.is/Kristinn Magnússon

Mikilvægt að gæta að jafnræði

Stapi líf­eyr­is­sjóður hef­ur krafið stjórn Íslands­banka um upp­lýs­ing­ar varðandi aðkomu stjórn­ar að söl­unni á 22,5% hlut rík­is­ins í Íslands­banka og eft­ir­fylgni stjórn­ar við at­huga­semd­ir innri end­ur­skoðanda. 

Að mati Ólafs hefur málið verið vel upplýst og telur hann mikilvægt að gæta að jafnræði hluthafa er kemur að upplýsingum.

„Við höfum sagt að okkur finnist málið vera upplýst. Við höfum lesið skýrsluna og sáttina og öll þessi gögn og mér sýnist að miðað við það sem bankinn er að gefa frá sér núna að málið sé bara að verða nokkuð vel upplýst,“ segir Ólafur og bætir við:

„Við höfum verið að kalla eftir jafnræði hluthafa, að félagið upplýsi hluthafa eins og frekast er kostur á um allt það sem að tengist málinu, þannig að þegar að fundur hefst séu allir jafn upplýstir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK