Þórdís Kolbrún: Ríkisfyrirtæki á ekki að kaupa tryggingafélag

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fjármálaráðherra segir að hún muni ekki samþykkja kaup Landsbankans á TM.

Þetta segir Þórdís Kolbrún í færslu á Facebook sem hún birti rétt í þessu. Sem kunnugt er var fyrr í dag tilkynnt um kaup Landsbankans á TM af Kviku banka fyrir tæpa 29 milljarða króna

Þórdís Kolbrún vísar í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar þar sem kveðið sé um að stjórnvöld muni halda áfram að draga úr eignarhaldi ríkisins í fjármálakerfinu og nýta fjármuni sem liggja í slíkum rekstri í uppbyggingu innviða.

Vill að söluferli Landsbankans hefjist samhliða

„Eigendastefna ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki er samhljóða og þar er meðal annars kveðið á um stuðla skuli að samkeppni í fjármálastarfsemi. Ég hef lagt mikla áherslu á að þessari stefnu sé fylgt eftir og á næstu dögum mæli ég fyrir um frumvarp um sölu eftirstandandi hlutar ríkisins í Íslandsbanka,“ segir Þórdís Kolbrún í færslu sinni í kvöld.

„Þrátt fyrir allt þetta mun Landsbankinn, sem er í tæplega 100% í eigu ríkisins […] að óbreyttu stækka og stíga afgerandi inn á nýjan markað með kaupum á stóru fyrirtæki á markaði, TM. Ríkisfyrirtæki á ekki að kaupa tryggingafélag. Ríkið á að losa um tugi milljarða og umbreyta þeim í samfélagslega innviði sem almenningur nýtur góðs af og byggir undir frekari verðmætasköpun og samkeppnishæfni allra landshluta. Kröftum okkar er betur borgið í öðrum fjárfestingum en í tryggingastarfsemi, sem af mér vitandi enginn hefur kallað eftir að sé í ríkisrekstri.“ 

Þá segir Þórdís Kolbrún að þessi viðskipti verði ekki að veruleika með hennar samþykki nema söluferli Landsbankans hefjist samhliða.

„Ég hef óskað skýringa á málinu frá Bankasýslu ríkisins sem heldur um eignarhluti ríkisins í bankanum og setur almenn viðmið um áherslur í rekstri auk þess að fylgja eftir eigendastefnu ríkisins,“ segir hún enn fremur.

Hefur áður gagnrýnt fyrirhuguð kaup

Þórdís Kolbrún hefur áður tjáð sig um fyrirhuguð kaup Landsbankans á TM, en hún sagði nýlega í viðtali í hlaðvarpi Þjóðmála að sér hugnuðust ekki kaupin. 

„Ef þú ert að spyrja mig hvað mér finnst um að stórt trygg­inga­fyr­ir­tæki í einka­eigu verði rík­is­fyr­ir­tæki, þá veit ég al­veg að þú veist svarið við því hvað mér finnst um það,“ sagði hún þegar hún var spurð út í þann orðróm sem þá var uppi um að Landsbankinn hygðist kaupa TM.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK