Segja bless við danskar, norskar og sænskar krónur

Landsbankinn er þegar hættur að kaupa og selja norskar krónur.
Landsbankinn er þegar hættur að kaupa og selja norskar krónur. Ljósmynd/Colourbox

Landsbankinn hefur hætt kaupum og sölu á norskum krónum og bankinn mun frá og með 3. maí 2024 hætta að kaupa og selja sænskar eða danskar krónur.

Þetta kemur fram á vef bankans. 

Þar segir að notkun reiðufjár fari minnkandi í Evrópu og sérstaklega á Norðurlöndunum. Aukin notkun á stafrænni tækni í verslun og viðskiptum og heimsfaraldur hafi flýtt þeirri þróun.

Hertar reglur um aðgerðir gegn peningaþvætti

Bent er á, að varnir gegn peningaþvætti hafi einnig sett gjaldeyrisviðskiptum með reiðufé verulegar skorður og hafi lög og reglur um aðgerðir gegn peningaþvætti verið hertar, aftur sérstaklega á Norðurlöndunum.

Samhliða þessum breytingum hafi eftirspurn viðskiptavina eftir erlendu reiðufé minnkað verulega undanfarin ár.

Sífellt erfiðara að greiða með reiðufé

„Það verður sífellt erfiðara að greiða með reiðufé á alþjóðavettvangi. Starfsfólk í útibúum Landsbankans er í mörgum tilfellum að taka á móti gjaldeyri sem viðskiptavinir gátu ekki notað til að inna af hendi greiðslur á ferðalögum sínum erlendis. 

Landsbankinn bauð upp á kaup og sölu á norskum, sænskum og dönskum myntum eins lengi og unnt var, en þar sem viðskiptabanakar í móttökulandi hafa tekið fyrir skipti á reiðufé frá öðrum löndum er ljóst að því verður ekki fram haldið.

Landsbankinn hefur í takt við þessar breytingar í umhverfi okkar, minnkandi eftirspurn viðskiptavina og hertar reglur gert breytingar á framboði erlendra seðla. Við höfum nú þegar hætt kaupum og sölu á norskum krónum og munum frá og með 3. maí 2024 hætta að kaupa og selja sænskar eða danskar krónur,“ segir bankinn í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK