Kvöldfréttir Stöðvar 2 í opinni dagskrá

Kvöldfréttir Stöðvar 2 verða aðgengilegar öllum landsmönnum á nýjan leik.
Kvöldfréttir Stöðvar 2 verða aðgengilegar öllum landsmönnum á nýjan leik. Ljósmynd/Aðsend

Frá og með mánudeginum 15. apríl verða kvöldfréttir Stöðvar 2 sýndar í opinni dagskrá. Rúm þrjú ár eru liðin frá því að fréttatímanum var lokað fyrir öðrum en áskrifendum, en það var gert í janúar 2021.

Munu landsmenn nú geta fylgst með kvöldfréttum, íþróttafréttum og Íslandi í dag, óháð því hvort þeir séu með áskrift að Stöð 2 eður ei.

Kvöldfréttunum verður jafnframt útvarpað á Bylgjunni, eins og hefur tíðkast, auk þess sem þær verða í beinni útsendingu á Vísi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK