Ekkert annað en að vona það besta

Vilhjálmur Birgisson í húsakynnum HB Granda í dag.
Vilhjálmur Birgisson í húsakynnum HB Granda í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Þetta er viss varnarsigur sem hér er unninn. Nú er ekkert annað en að vona það besta, að hægt sé að uppfylla óskir og þarfir HB Granda til þess að geta verið hér áfram, og helst ná að efla þá starfsemi sem er fyrir hendi.“

Þetta segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, um þá ákvörðun HB Granda að ganga til viðræðna við Akranesbæ um mögulega uppbyggingu á hafnarsvæði bæjarins.

Spurður hvort hann sé sáttur við niðurstöðuna segir hann:

„Miðað við þá stöðu sem maður stóð frammi fyrir, að um næstu mánaðamót blöstu við okkur uppsagnarbréf til tæplega hundrað starfsmanna, er ég alla vega glaður að þetta er komið í þennan farveg.

Og ég veit að bæjaryfirvöld hér á Akranesi og samfélagið í heild sinni munu leggja sig í líma við það að reyna að uppfylla hér þarfir fyrirtækisins.“

Lokar að óbreyttu 1. september

Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda, fundaði fyrr í dag ásamt fyrrgreindum nafna sínum og trúnaðarmönnum starfsmanna við HB Granda. 

Þar var komið á framfæri ósk við forsvarsmenn fyrirtækisins um að það myndi fresta áformum um að hætta botnfiskvinnslu á Akranesi, á grundvelli þeirrar viljayfirlýsingar sem bæjaryfirvöld Akraness gáfu út í gærkvöldi.

„Það er skemmst frá því að segja að forsvarsmenn fyrirtækisins tóku jákvætt í það. Niðurstaða fundarins varð sú að viðræður við þá aðila sem heyra undir þar, svo sem Akraneskaupstað og Faxaflóahafnir, myndu hefjast fljótt og vel,“ segir formaður verkalýðsfélagsins.

„Ef þær leiða hins vegar ekki til þeirrar niðurstöðu sem fyrirtækið telur ásættanlegt, þá mun koma til lokunar 1. september.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 20.9.24 501,11 kr/kg
Þorskur, slægður 20.9.24 428,26 kr/kg
Ýsa, óslægð 20.9.24 249,57 kr/kg
Ýsa, slægð 20.9.24 193,95 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.9.24 255,01 kr/kg
Ufsi, slægður 20.9.24 267,83 kr/kg
Djúpkarfi 20.9.24 301,00 kr/kg
Gullkarfi 20.9.24 404,77 kr/kg
Litli karfi 16.9.24 10,34 kr/kg
Blálanga, óslægð 20.9.24 48,32 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.9.24 Margrét GK 33 Lína
Þorskur 4.807 kg
Ýsa 3.618 kg
Steinbítur 95 kg
Ufsi 26 kg
Karfi 7 kg
Langa 1 kg
Samtals 8.554 kg
20.9.24 Gullmoli NS 37 Handfæri
Ufsi 10 kg
Samtals 10 kg
20.9.24 Valur ST 30 Handfæri
Þorskur 1.223 kg
Samtals 1.223 kg
20.9.24 Tóti NS 36 Handfæri
Ufsi 25 kg
Karfi 4 kg
Samtals 29 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 20.9.24 501,11 kr/kg
Þorskur, slægður 20.9.24 428,26 kr/kg
Ýsa, óslægð 20.9.24 249,57 kr/kg
Ýsa, slægð 20.9.24 193,95 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.9.24 255,01 kr/kg
Ufsi, slægður 20.9.24 267,83 kr/kg
Djúpkarfi 20.9.24 301,00 kr/kg
Gullkarfi 20.9.24 404,77 kr/kg
Litli karfi 16.9.24 10,34 kr/kg
Blálanga, óslægð 20.9.24 48,32 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.9.24 Margrét GK 33 Lína
Þorskur 4.807 kg
Ýsa 3.618 kg
Steinbítur 95 kg
Ufsi 26 kg
Karfi 7 kg
Langa 1 kg
Samtals 8.554 kg
20.9.24 Gullmoli NS 37 Handfæri
Ufsi 10 kg
Samtals 10 kg
20.9.24 Valur ST 30 Handfæri
Þorskur 1.223 kg
Samtals 1.223 kg
20.9.24 Tóti NS 36 Handfæri
Ufsi 25 kg
Karfi 4 kg
Samtals 29 kg

Skoða allar landanir »