Hlutabréf í franska bílafyrirtækinu Renault hröpuðu um rúm 7% í morgun eftir að bandarísk-ítalski bílaframleiðandinn Fiat Chrysler dró til baka tilboð um samruna fyrirtækjanna og sagði ástæðuna „stjórnmálaástandið“ í Frakklandi.
Hlutbréf féllu einnig í Fiat Chrysler um 3% við opnun markaðar, en hækkuðu þó á ný og voru komin í 1,7% skömmu síðar.
Greint var frá fyrirhuguðum samruna í lok síðasta mánaðar, en þá hafði fyrirtækjunum lengi tekist að halda þreifingunum leyndum og hækkuðu hlutabréf þeirra í kjölfarið.
Fyrr á árinu hafði Financial Times sagt frá því að risarnir tveir hygðust koma á nánu samstarfi til að geta betur tekist á við krefjandi aðstæður á bílamarkaði á heimsvísu.
Fjármálamarkaðir fögnuðu fyrirhugðum samruna og hafði hann þegar fengið samþykki franskra stjórnvalda, sem vöruðu engu að síður við því að „of hratt“ yrði farið í samrunann.
Sögðu stjórnendur Fiat Chrysler í dag að þótt þeir væru enn „sannfærðir“ um hagkvæmni samrunans væri stjórnmálaástand í Frakklandi ekki með þeim hætti að hægt væri að framfylgja honum.
Félögin tvö selja árlega um 8,7 milljónir ökutækja um allan heim og inniheldur bílaframboð þeirra merki á borð við Alpine, Dacia, RAM, RSM, Alfa Romeo, Dodge, Chrysler, Jeep og Maserati.
Þá á Renault liðlega 43% hlut í japanska bílaframleiðandanum Nissan.