Davíð Helgason og Isabella eiga von á barni

Davíð Helgason og Isa­bella Lu War­berg.
Davíð Helgason og Isa­bella Lu War­berg. Ljósmynd/Heiða Helgadóttir

Davíð Helga­son fjár­fest­ir og danska fyr­ir­sæt­an Isa­bella Lu War­berg eiga von á sínu öðru barni saman en þau eiga fyrir einn son. Davíð á einnig börn úr fyrra hjónabandi. 

„Bíðum eftir vorbarninu okkar,“ skrifar fyrirsætan á Instagram-síðu sína. Hún birtir meðal annars mynd af sér með myndarlega óléttkúlu. Hún er klædd í fallega loðkápu og í Gucci-strigaskó. Verðandi stóri bróðir er með á myndunum. 

Davíð og Isabella eiga soninn Ágúst sem kom í heiminn árið 2022. Þau gengu í hjónaband heima hjá sér við Hrólfs­skála­vör á Seltjarnarnesi um verslunarmannahelgina í fyrra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert